— arnigunnar.net

Archive
May, 2007 Monthly archive

mmmmmm … svínarif :)

Þið sem mig þekkið og hafa komið i heimsókn til mín vita að ég er alltaf í inniskóm, og ekki bara hvaða inniskóm sem er, eldgömlum Birkenstock inniskóm sem ég hef átt síðan árið 1990. Ég hef heitið því að skipta ekki um skó fyrr en þessir gefa alveg upp öndina.

En á miðvikudaginn ákvað ég að skilja gömlu skóna eftir heima hjá pabba þegar við vorum að pakka niður í ferðina til Svíþjóðar. Þegar við komum svo heim skrapp ég út í búð og keypti eina svona:

Birkenstock að sjálfsögðu. Ef þessir duga jafn lengi og þeir gömlu, þarf ég ekki að skipta um inniskó fyrr en árið 2034!

Og hérna er líka mesta rokið. Við erum reyndar búin að vera svaklega heppin með veður síðan við komum fyrir rúmlega viku síðan. Sól mestallann tímann og ekki mikið rok … en hitinn hefur ekki verið neitt sérstakur.

Við erum búin að hafa það mjög gott hérna á klakanum. Pabbi kom og sótti okkur á flugvöllinn og stubburinn kallaði á afa sinn hátt og snjallt á leiðinni fram úr tollinum. Þrítugsafmæli hjá Írisi var svakalega gaman og svo tók við vinna og aftur vinna. Við Mummi erum búnir að koma okkur tímabundið fyrir í Lágmúlanum á jarðhæðinni. Við erum ekki búnir að fá það húsnæði sem við verðum í, en þetta er fínt á meðan við bíðum eftir því.

Um síðustu helgi steggjuðum við Andra sem er að fara að gifta sig 19. maí. Við sóttumm hann kl. 10 á laugardagsmorguninn og drógum hann fram úr rúminu. Fórum með hann að kjósa (mjög mikilvægt) og svo í næstum því morgunmat á Cafe París. Skildum hann næstum því eftir í Litlu Kaffistofunni og á Hellisheiðinni, og fórum svo í rafting í Hvítá.

Þar var vel tekið á því í 2 tíma … hoppað 5 metra ofanaf kletti og farið í keppni um hver færi oftast út í ánna úr bátnum. Andri vann !

Svo fórum við í Miðdalinn og eyddum kvöldinu og kosninganóttinni í heita pottinum og höfðum það gott. Komumst svo að því að karlmenn eiga ekki að fara einir í sumarbústað, og þess þá síður að pakka niður sjálfir. Það var nóg af áfengi, gosi og snakki, en lítið um morgunmat … gleymdum því víst. Ég gleymdi að taka með mér sundskýlu, handklæði og allt snyrtidótið … og ég pakkaði niður sjálfur.

En mikið svakalega er gott að vera kominn heim :)

… þá erum við komin frá Róm … (sérstaklega fyrir Lilju og Mumma)