Róm er snilld - arnigunnar.net

Róm er snilld

Í: Fjölskyldan

11 Apr 2007

Jæja … þá erum við komin til Rómar, við hjónin (finnst ég vera gamall þegar ég segi “við hjónin”). Allavega …

Við skildum stubbinn eftir í góðu yfirlæti hjá ömmu Eygó. Hann var varla að taka sér tíma frá Playstation tölvunni til að kveðja okkur, en með hótunum um að slökkva var hægt að ná honum í burtu … greinilega ekkert ósáttur við að við værum að fara.

Flugið yfir var bara fínt, soldið mikið þröngt í Sterling vélinni, rusl á gólfinu þegar við komum inn í vélina, tyggjó í Sterling blaðinu, en fyrir utan það var þetta fínt. Biðum alveg óralengi eftir farangrinum, en hann kom að lokum, eins og við var að búast. Við vorum mjög heppin, því að farangurinn okkar var með þeim fyrstu sem kom upp.

Leigubílsferðin niður í bæ var Gullu alveg ógleymanleg. Hann keyrði soldið hratt gaurinn, og hlustaði á lýsingu á leik Manchester United og Roma í útvarpinu, alveg þangað til að staðan var orðin 4-0, þá hætti hann og reyndi við eitthvað annað. Hann keyrði vægast sagt mjög hratt og var lítið að virða akreinar eða svoleiðis smáatriði … þær skipta engu máli hér. Hérna velja bara allir sína hentugustu línu og keyra hana … svo er bara spurning um að vera nógu frekur til að komast sína leið.

Hótelið er mjög fínt á góðum stað í bænum, og herbergið ágætt líka (má líka alveg vera það).

Gulla, sem liggur hérna við hliðina á mér vill endilega að ég segi frá blómvendinum sem beið hennar við komu okkar. Ég hafði beðið þá í móttökunni um að setja blómvönd upp í herbergið áður en við kæmum, og við það var staðið. Þessi stærðarinnar blómvöndir beið á skrifborðinu þegar við komum við mikla gleði frúarinnar.

Dagurinn í dag var bara tekinn rólega, skoðuðum Trevi gosbrunninn og fórum í rútuferð um borgina. Komum svo aftur upp á hótel og sofnuðum bæði eins og verstu gamalmenni.

Á morgun ætlum við að skoða Colosseum og Forum Romanum … skrifa kannski um það seinna.

Kveðja frá Róm …



7 komment við Róm er snilld

Avatar

Erla og Eygló

April 12th, 2007 at 04:18

Hvaða hvaða!!!!! Rosablogg í fríinu – hefur þú ekkert annað að gera frændi??????????????????????????????????????????????????????’

Avatar

Árni Gunnar

April 12th, 2007 at 23:07

Ha … hmm … ha … :s

Hafið þið ekkert annað að gera í Ameríkunni … eða eruð þið ekki þar lengur ??

Avatar

Erla og Eygló

April 13th, 2007 at 01:36

hí hí – vissum að þú myndir svara svona. Jú erum enn í ameríkunni og Gunnar nýbúinn að redda nettengingu hjá okkur.

Avatar

Árni Gunnar

April 13th, 2007 at 22:13

Uss Gunnar … hvað á þetta að þýða að vera svona lengi að redda neti … ég hélt að það væri ekki hægt að lifa án nettengingar ??????

Avatar

Lilja

April 14th, 2007 at 15:39

Mmmmmh !
Hvad lifid hljomar yndislegt hja ykkur akkurat nuna !
Eg er graen af ofund :)
Kvedja Lilja

Avatar

mamma

April 14th, 2007 at 18:11

Smá comment frá Svíþjóð. Við höfum það gott amma búin að kenna drengnum bæði veiðimann og lönguvitleysu. Það er greinilegt að ameríkufarar geta ekki án netsins verið. kveðja til allra amma og Hlynur Snær

Avatar

Lilja

April 30th, 2007 at 10:12

erud tid ekki ad ver komin fra Romi !

  • Árni Gunnar: Andri minn ... ég er nú ekkert hræddur við áttræðar kjellingar ! [...]
  • Téður Andri Freyr Hansson: mikið ofboðslega hlakkar mig til að komast í fótbolta með þér..... mikið rosalega ætla ég [...]
  • ERla: Til lukku frændi ;)!!! [...]
  • Greta: Nú þá er bara að fljúga til Köben og skipta um vél þar. Getur varla kostað nálægt þessum [...]
  • Árni Gunnar: Þakka hlýleg orð ... við vorum í píanótíma í gær þar sem Elín hrósaði honum mikið fyr [...]

Síðan mín á Facebook

Myndir frá Flickr

  • Cheetah
  • Cheetah
  • Cheetah
  • A baby giraffe
  • Big giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Zebra
  • Buffalo
  • A baby zebra
  • Zebra

ODIN á Facebook

ODIN on Facebook

Flokkarnir

Safnið