Jæja … þá erum við komin til Rómar, við hjónin (finnst ég vera gamall þegar ég segi “við hjónin”). Allavega …
Við skildum stubbinn eftir í góðu yfirlæti hjá ömmu Eygó. Hann var varla að taka sér tíma frá Playstation tölvunni til að kveðja okkur, en með hótunum um að slökkva var hægt að ná honum í burtu … greinilega ekkert ósáttur við að við værum að fara.
Flugið yfir var bara fínt, soldið mikið þröngt í Sterling vélinni, rusl á gólfinu þegar við komum inn í vélina, tyggjó í Sterling blaðinu, en fyrir utan það var þetta fínt. Biðum alveg óralengi eftir farangrinum, en hann kom að lokum, eins og við var að búast. Við vorum mjög heppin, því að farangurinn okkar var með þeim fyrstu sem kom upp.
Leigubílsferðin niður í bæ var Gullu alveg ógleymanleg. Hann keyrði soldið hratt gaurinn, og hlustaði á lýsingu á leik Manchester United og Roma í útvarpinu, alveg þangað til að staðan var orðin 4-0, þá hætti hann og reyndi við eitthvað annað. Hann keyrði vægast sagt mjög hratt og var lítið að virða akreinar eða svoleiðis smáatriði … þær skipta engu máli hér. Hérna velja bara allir sína hentugustu línu og keyra hana … svo er bara spurning um að vera nógu frekur til að komast sína leið.
Hótelið er mjög fínt á góðum stað í bænum, og herbergið ágætt líka (má líka alveg vera það).
Gulla, sem liggur hérna við hliðina á mér vill endilega að ég segi frá blómvendinum sem beið hennar við komu okkar. Ég hafði beðið þá í móttökunni um að setja blómvönd upp í herbergið áður en við kæmum, og við það var staðið. Þessi stærðarinnar blómvöndir beið á skrifborðinu þegar við komum við mikla gleði frúarinnar.
Dagurinn í dag var bara tekinn rólega, skoðuðum Trevi gosbrunninn og fórum í rútuferð um borgina. Komum svo aftur upp á hótel og sofnuðum bæði eins og verstu gamalmenni.
Á morgun ætlum við að skoða Colosseum og Forum Romanum … skrifa kannski um það seinna.
Kveðja frá Róm …