Þá er þetta allt að smella
Jæja … þá er þetta allt að smella saman hjá okkur hérna úti í Sverige. Við gengum frá sölunni á húsinu í gær, og fyrir töluvert hærri upphæð en við höfðum þorað að vona, og það er víst bara mjög gott mál.
Það stefnir allt í að við þufum að afhenda húsið hérna 20. júní næstkomandi, einum og hálfum mánuði áður en við fáum Fannafoldina afhenta. En það er víst hugsanlegt að Fannfoldin afhendist eitthvað fyrr, og er það bara hið besta mál. Þetta verður hins vegar smá púsluspil og hausverkur að pakka öllu niður, því að við erum með gesti 6. júní – 18. júní. Þeir verða þá bara að þola það að búa með okkur og kössunum okkar á meðan þau eru hér.
Pabbi, Lea og Sigurlaug Birna ætla að koma hingað 6. júní og við ætlum að fara á landsleik Svíþjóðar og Íslands. Það verður svaka stuð vonandi, þó að Íslendingarnir hafi ekki getað neitt í þessari undankeppni. Dísa, Davíð og stelpurnar þeirra koma svo 11. júní (sama dag og hin fara) og eru alveg til 18. Við ætlum að fara með þeim í Kolmorden og Astrid Lindgren garðinn.
Það hefur verið svooooo mikið að gera hjá mér í vinnunni að ég hef ekki gefið mér tíma til að skrifa hérna á síðuna, en það stendur vonandi til bóta … ég lofa þó engu.
Mamma kemur 6. apríl, á föstudaginn langa, og verður hjá okkur yfir páskana + meira. Við Gulla ætlum svo að stinga mömmu og Hlyn af í heila viku og vera saman í Róm. Skoða okkur um, hafa það gott og slappa af eftir vinnutörn vetrarins, allt mömmu að þakka að við getum farið bara tvö :)
Annars gengur allt hinn sama vanagang og venjulega. Við förum til Íslands 9. maí til að vera viðstödd brúðkaup hjá Lólý og Andra. Gulla ætlaði að fara 30. apríl og skilja okkur eftir, en hún er búin að skipta um skóla og tekur því ekki próf núna í vor, og ætlar því að vera hjá okkur þangað til við förum til Íslands.
Starfsmaðurinn minn kemur hingað yfir 25. apríl og verður hjá okkur í viku, 10 daga. Við ætlum að fara yfir málin og kynnast fólkinu hjá Holiday Autos aðeins. Mér finnst þetta alveg svakalega stórt skref að vera kominn með mann í vinnu, en er þess fullviss um að þetta komi til með að ganga vel. Við erum þegar búnir að fylla hans tíma 100%. Hann flytur heim til Íslands þarna í lok apríl og við erum að leita okkur að skrifstofu húsnæði eins og er. Erum með augastað á einu, það kemur í ljós í næstu viku hvort að af verður.