Fyrsta vikan í Orlando, handbolti og Adolf Ingi
Jæja … þá er maður búinn að þrauka viku án fjölskyldunnar. Hef talað við þau á hverjum degi og reynt að nota vefmyndavélarnar til að ná smá sambandi við þau. Það er rosalega skrítið að koma heim úr vinnunni og það er enginn stubbur að taka á móti manni, eða kona að knúsa. En þetta styttist með hverjum deginum sem líður og þetta er bara verkefni sem við ákváðum að takast á við saman.
Á föstudaginn fórum við Stebbi á NBA leik, sáum Orlando Magic takast á við Washington Wizards. Það var rosalega gaman að sjá alvöru NBA leik, og maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað þessir leikmenn eru svakalega snöggir. Við sátum í næst efstu röðinni í höllinni, en það var allt í lagi. Þessar hallir eru minni en þær virðast í sjónvarpinu.
Í gær eyddum við svo deginum í Kennedy Space Center hérna úti á Cape Canaveral. Það var alveg mögnuð reynsla að sjá þetta allt saman. Maður hafði ekki alveg gert sér grein fyrir því hvað það er mikið átak að koma nokkrum mönnum út í geiminn. Þegar John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, kveikti í þjóðinni og setti þeim markmið að koma manni til tunglsins, voru 400.000 manns sem voru að vinna hjá NASA. Magnað alveg.
Við sáum þarna eftirlíkingu af Discovery flauginni, og þarna var líka Saturn V eldflaug sem var eins og þær sem sendu Neil Armstrong til tunglsins árið 1969. Og mikið svaaaaakalega var hún stór. Stærsta og flóknasta tæki sem mannkynið hefur nokkru sinni smíðað. Það er fullt af myndum af ferðinni á Flickr síðunni minni.
Svo á morgun tekur við önnur vinnuvika … þetta gekk soldið hægt fyrir sig fyrstu dagana, en ég komst betur í gang þegar leið á vikuna. Þeir eru nú ekkert sérstaklega að flýta sér hérna, taka svona Sænskann pól í hæðina hvað það varðar, sem er gott. Það eru líka nokkrar myndir af vinnuaðstöðunni sem við Stebbi erum með á flickr. Stebbi er líka með nokkrar myndir af ferðinni þar.
Svo vorum við að hlusta á Rás 2, Ísland gegn Úkraínu á HM í handbolta. Það gekk nú reyndar ekki alveg eins og við hefðum viljað, við töpuðum fyrir þeim. Svona eru víst íþróttirnar, það er ekki hægt að ganga út frá neinu sem vísu hvað þær varðar. Það sem sló mig soldið er hvað Adolf Ingi (minn uppáhaldslýsandi (eða þannig)) var svakalega neikvæður nánast allann leikinn. Ég er ekki alveg að gúddera þessa framkomu. Hann úthrópaði íslensku leikmenninna trekk í trekk og var almennt mjög leiðinlegur … sko meira en venjulega … :o
Brosum framaní heiminn … þetta er nú bara handbolti. Gerum okkar besta á morgun og reynum að fara úr keppninni með reisn. Ég ætla að brosa á morgun allavega :)