Kominn til Orlando
Já … þá er maður kominn til Orlando í Bandaríkjunum. Átta tíma flug að baki. Ég var vakandi í næstum sólarhring í gær, vaknaði snemma til að skutla Gullu og Hlyni Snæ út á flugvöll. Fór svo í vinnuna og náði að redda nokkrum hlutum áður en ég fór í flugið.
Húsið sem við erum með er alveg meiriháttar. 4 svefnherbergi og 2 stofur. Mjög flott. Við erum með bílaleigubíl líka sem var þjóðnýttur í dag til að kíkja í búðir. Ég keypti mér litla myndavél, alveg handónýtt að geta ekki bara kippt með sér lítill vél … nenni ekki alltaf að taka þá stóru.
Annars skrifa ég meira þegar þetta er almennilega komið í gang. Við mætum í vinnuna saman á mánudaginn. Stebbi fer svo heim 6. febrúar, þannig að ég verð hérna einn í heila viku. Þá verð ég líka kominn vel inn í þetta og það verður allt í lagi. Ég verð svo viku á Íslandi þegar ég kem heim.
