Það er hátíð í bæ … en hvers vegna ?
Ég verð bara að viðurkenna það, ég trúi ekki á guð, hef aldrei gert og mun aldrei gera. Punktur. Jólin eru ekki trúarleg hátíð fyrir mér, heldur tími til að taka sér tíma frá hversdeginum og eyða tíma með sínum nánustu vinum og ættingjum.
Og það er einmitt það sem við höfum gert og komum til með að gera núna um jólin. Pabbi kom í heimsókn til okkar frá Íslandi og eyddi með okkur aðfangadagskvöldi og jóladeginum. Svavar, Katarina og börnin komu í morgun og fengu heitt súkkulaði og smákökur “a la Gulla”. Pabbi fer því miður heim á morgun, en vinafólk okkar, Robin (frá Hollandi) og Natalya (frá Úkraínu) koma í mat. Við ætlum að gefa þeim íslenskt lambalæri, en bjóða þeim upp á smá afgangs hangikjöt sem við náðum ekki að klára í kvöld.
Á miðvikudag eða fimmtudag ætlum við svo að skella okkur til Noregs og hitta Mumma, Ólöfu, Elísabetu, Tobba, Lilju og Oliver Breka. Þar ætlum við að vera um áramótin og koma heim á næsta ári. Það verður stuð þar, og vonandi að Hlynur og Oliver geti leikið sér mikið saman þegar við komum þangað.
Aðfangadagurinn var mjög góður. Á Þorláksmessumorgunn fórum við pabbi niður í bæ og keyptum þessa fínu hreindýrasteik. Henni var skellt á pönnu og í ofn og var svona líka svakalega góð. Ég gerði skeldýrasúpu á undan, sem var alveg himnesk. Ég hef gert humarsúpu undanfarin ár, en fannst tími til kominn að breyta til og gera eitthvað annað. Og ég heiti því hér með að gera sömu súpuna aldrei 2 ár í röð.
Jóladagsmáltíðin var Húsavíkur hangikjöt sem pabbi kom með, uppstúfur, laufabrauð og kartöflur. Alvöru Íslenskt :) Svavar og Katarina voru með jólaboð líka fyrir fjölskylduna hennar, en hangikjötið rann ekki eins ljúft þar niður og það gerði hér, svo ég segi ekki meira :o
Þó ég trúi ekki á guð, þá Hlyns vegna trúi ég á jólasveina ;)
Öllum sem lesa þetta pár, sem ég þekki og öllum hinum lika óska ég gleðilegra jóla, sama á hvaða forsendum þið haldið jólin hátíðlegt. Gleðileg Jól !