Sænsk kombökk og fleira
2 stykki sænsk kombökk (e. comebacks) í ensku úrvaldsdeildina í fótolta. Magnus Hedman gerði samning við Chelsea til vors og nú er Henrik Larsson búinn að skrifa undir þriggja mánaða lánssamning við Manchster United. Veit ekki hvað það er með fjallaloftið hérna, en 2 gamalmenni að gera kombakk er ekki slæmt á ekki styttri tíma.
Við erum ennþá að bíða efitir vetrinum hérna. Það er búið að vera fínasta veður í haust, milt og fínt. Það hefur svo sem ekki ringt mikið, en það er búið að vera blautt og síðan í byrjun október.
Sumir voru víst að rukka eftir myndum, og ég tók nokkrar um síðustu helgi, en þar sem ég ætla að nota eina úr seríunni í jólakortið okkar, þá ætla ég ekki að setja þær á netið strax. Við Hlynur ætlum kannski til Uppsala á sunnudaginn að horfa á flugeldasýningu og það er aldrei að vita nema maður taki myndavélina með þangað.
Andri, Lólý, Dagbjört Líf og Alexander eru svo að koma í heimsókn í næstu viku. Andri er að fara til Finnlands á ráðstefnu hjá Nokia og ætlar að geyma fjölskylduna hérna á meðan. Aldrei að vita nema maður taki sér kannski smá frí á meðan þau eru hérna …
Gulla er núna uppi að læra fyrir próf áður en þau koma. Fyrsta prófið er á miðvikudaginn og svo 11. og 12. des. Við Hlynur reynum að láta fara lítið fyrir okkur hérna niðri á meðan.
Ég ætla að fara með hann út á morgun og við ætlum að kaupa jólaljós fyrir garðinn okkar. Hann er alveg heillaður af öllum ljósunum sem eru að koma upp hér í nágrenninu. Þannig að allt verður vel lýst þegar Andri og Lólý koma :)
Þessir fyrstu 2 mánuðir sem minn eigin herra hafa liðið alveg ótrúlega hratt. Ég er alveg gáttaður yfir því að ég sé búinn að senda út 2 sett af reikningum til allra minna kúnna. Og það er aldrei að vita nema að það verði mikið að frétta af þessu brölti mínu innan tíðar … læt ykkur vita síðar :)
Svo var ég nú hálf fúll yfir því að bara pabbi og Mummi kommentuðu á afmælisdagabloggið mitt … annað hvort les þetta enginn, eða þið eruð hrædd við að skrifa … kommon people !
Jæja … gott í bili … Árni Gunnar.