Ég er að bíða eftir að það sem ég hef verið að vinna að í nótt sé samþykkt og ég geti komið mér í rúmið. Ég kíkti á WikiPedia á meðan og fór að skoða dagsetningar og komst að ýmsu skemmtilegu.
Ég á sama afmælisdag og eftirfarandi:
Þarna vekja náttúrulega athygli 2 franskir knattspyrnumenn og aðalsfólk. Og svo auðvitað Sandra Kim fyrir okkur Júróvisjón nöttana. Hún söng sko fyrir Belgíu árið 1986 þegar við tókum fyrst þátt í Bergen. Og nei, ég las ekki WikiPedia greinina hennar … ég vissi þetta … ekki spurja af hverju :o
Kíkti svo á familíuna … Gulla á sama afmælisdag og Osama Bin Laden og Chuck Norris. Það hlýtur að tengjast eitthvað.
Svo eigum við sitthvort Jackson bróðirin, húm með Marlon, ég með Tito. Hún tengist einnig aðalsfólki, Prince Edward í Englandi á afmæli 10. mars.
Og þá að guttanum … Steve Wozniak annar stofnandi Apple er fæddur 11. ágúst, en líka Hulk Hogan, þannig að þetta eru ekki bara góðar fréttir. En það hlaut að vera ástæða fyrir því að mig langaði í Makka …
Og frumburðurinn, hann á ekki minni mann en Roy Kean í sínu horni. Kannski ég ætti að fá hann upp á klaka svo að legsteinninn verði kláraður einhvertímann :o
Geez … það sem maður tekur upp á um miðja nótt :o
Endilega segið frá ykkar afmælisdögum og hverjir frægir eiga afmæli sama dag … það væri geggt !
3 komment við Hvað stendur dagsetning fyrir ?
Mummi
November 28th, 2006 at 16:44
Iss, þetta er svakalegt Árni, það eru heldur ekki neinir merkilegir Liverpool leikmenn fæddir á þessum dögum sem þú telur upp…
En ég er hinsvegar fæddur á sama degi og Rafael Benitez og það eitt og sér er meir en nóg fyrir mig :)
Pabbi
November 29th, 2006 at 13:56
Ég á afmæli sama dag og bjórinn var leyfður á Íslandi, það nægir mér.
Annað hvernig er það er alveg hætt að nota myndavélina á heimilinu í Svíþjóð ????
Árni Gunnar : Litli vefurinn minn, blogg, myndir og lífið í Svíþjóð
December 1st, 2006 at 17:38
[...] Svo var ég nú hálf fúll yfir því að bara pabbi og Mummi kommentuðu á afmælisdagabloggið mitt … annað hvort les þetta enginn, eða þið eruð hrædd við að skrifa … kommon people ! [...]