Frúin var eitthvað að skammast yfir því að ég sendi bara inn einhver videobrot … væri ekkert að skrifa sjálfur. Eitthvað er nú satt í því, en mér fannst þetta bara svo magnað, hvort um sig.
Jólaplönin eru nú að koma í ljós. Aftur ætlum við að vera hérna úti í Svíþjóð um jólin. Pabbi ætlar að koma til okkar 22. des og vera um jólin. Hann ætlar að fara aftur á annan í jólum og daginn eftir ætlum við að skutlast yfir til Noregs og eyða áramótunum með Mumma, Ólöfu, Elísabetu, Tobba, Lilju, Oliver og fullt af öðru fólki. Það verður líka fínt fyrir mig að taka mér smá frí.
Fyrirtækið gengur bara vel … ég hef nóg að gera, miklu meira en nóg reyndar. Og meira að detta inn vonandi, segi frá því síðar ef af verður :) Ég setti nýjann vef í loftið þar í vikunni, með nýja logoinu og alles. Ég er svo hægt og hægt að vinna í að þýða allt saman yfir á íslensku og verð með íslenska útgáfu líka.
Það var fínt á Íslandi um daginn … nóg að gera og ég náði nú að hitta slatta af fólki. Gullu fannst ég vera full frekur á að láta bjóða mér í mat, en Erni og Björgu var alveg sama … alveg satt :o
Við yfirgáfum Hlyn í afmæli í fyrsta sinn um síðustu helgi. Viktor, sem er með honum á Legis, var fjögurra ára. Mamma hans er víst ríkasta konan í Hässelby, og þau búa í stóru einbýlishúsi niður við ströndina, svaka flott. Svo var afmæli aftur í gær hjá dagmömmunni, og Gulla var að spurja hann hvað stelpan hefði orðið gömul, og hann gat ekki sagt fjögurra ára á íslensku, við urðum að gefa honum leyfi til að segja það á sænsku … spúkí þróun.
Gott í bili … Árni Gunnar.
2 komment við Sitthvað lauslegt
Mummi
November 23rd, 2006 at 15:38
Ójá, þetta verða skemmtileg áramót :-)
Árni Gunnar
November 23rd, 2006 at 17:39
Þokkalega Mr. Mummster :)