Sko … þegar 2 af mínum uppáhalds hljómsveitum taka sig til og gera lag saman, þá verð ég glaður :) Hérna fyrir neðan er myndband við lagið The Saints Are Coming með Green Day og U2. Lagið var tekið upp til styrktar fórnarlömbum fellibylsins Katrínar sem olli miklum skemmdum í New Orleans á síðasta ári.
Fyrir utan þessi gleðitíðindi, þá hef ég það bara ágætt á Íslandinu … nóg að gera og fólk að hitta. Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn fékk nafnið sitt í dag. Stefán Ingi var skírður með frænku sinni Nönnu í dag. Bylgja, Bjarni, Óli, Hlynur og Matta héldu meistarans skírnarveislu úti á Granda. Þakka kærlega fyrir skonsur með hangikjöti og súkkulaði köku sem ég tók allt of stórann bita af :)
Ég ætlaði að fara heim í fyrramálið (sunnudagsmorgunn) en er búinn að fresta heimferð til fimmtudags … sjáum hvort það dugi :o
Ekki hægt að kommenta við þessa færslu.