— arnigunnar.net

Kristófer Daði

Frétti áðan að fóstur sonur eins besta vinar míns í Menntaskólanum við Sund, hann Kristófer Daði, greindist með krabbamein fyrir stuttu síðan. Maður verður eitthvað svo sleginn þegar maður fréttir svona … þetta snertir mann svo svakalega. Og mitt í öllum átökunum og baráttunni við krabbamein eignuðust þau lítinn strák þann 18. október. Gleði og átök í sama pakkanum … svakalegt.

Ég vil bara senda þeim öllum allar góðar hugsanir sem ég get fundið í mínum litla kroppi … vonandi fer allt saman vel.

Annars hef ég það bara fínt á klakanum … vinn og vinn og vinn og vinn … sem sagt alveg eins og úti í Sverige :o