— arnigunnar.net

Uss … spurning um að gefa sér tíma fyrir ykkur líka :o

Halló allir sem eru að fylgjast með … ég er ekki dáinn úr vinnu, hef reyndar aldrei verið hressari. Þessi fyrsti mánuður sem minn eiginn herra hefur verið fljótur að líða. Ég er búinn að vinna mjög mikið til að halda þessum kúnnum mínum ánægðum. Og það er markmið númer eitt … hafa kúnnana ánægða … þeir eru og verða mín besta auglýsing :)

Og svo þið auðvitað … ég er þess fullviss að þegar þið fréttið af einhverjum sem þarf á kerfisforritun að halda, þá bendið þið á ZEUS … er það ekki annars ?

Hmm … en hvað er ZEUS? Það er nú betra að segja aðeins hvað ég ætla að leggja áherslu á. Málið er að ég ætla ekki að leggja áherslu á hefðbundnar heimasíður eins og þessa sem þið eruð á núna. Það verður bara aukabúgrein. Ég ætla að leggja áherslu á að þjónusta kúnna og vefkerfi sem eru viðskiptatengd. Sumarferðir og Ferðaskrifstofa Íslands eru mjög gott dæmi um þetta. Þar sér ZEUS um alla bakvinnslu, en Hugsmiðjan smíðar nýjann vef sem að byggir á upplýsingum sem koma frá mínu kerfi. Kerfið sem ég er að leggja lokahönd á heitir Óðinn og heldur utanum allt fyrir Sumarferðir. Allar bókanir sem koma inn, greiðslur, flug upplýsingar, hótel upplýsingar og bara allt það sem þau þurfa að sýsla við daglegann rekstur skrifstofunnar.

Við höfum átt framúrskarandi samstarf hingað til, nýji vefurinn er að taka á sig mynd og ætti að sjá dagsins ljós fljótlega. Og ég er á leiðinni til Íslands á sunnudaginn að stíga lokaskrefin í þessari vinnu sem er búin að taka miklu lengri tíma en við áætluðum í upphafi (svona eins og forritunar verkefni eiga það til að gera).

Ég veit ekki hvort ég hef tíma til að hitta alla sem mig langar til að hitta, ég verð mjög upptekinn allann tímann, en ég reyni nú að koma inn einhverjum heimsóknum. Gulla og Hlynur ætla að passa húsið hérna úti á meðan ég er heima að vinna fyrir salti í grautinn.

Það er allt í góðu hérna úti annars. Gulla er svona að venjast við að ég sé heima alla daga. Ég reyni að komast út úr húsi hið minnsta einu sinni á dag. Ég er byrjaður að æfa í sundlauginni hérna í hverfinu og reyni að komast þangað tvisvar í viku. Við höfum svo aðeins farið í göngutúra í hádeginu við hjónin. Það er alveg nauðsynlegt að komast út þegar maður vinnur svona heima hjá sér … hvað þá þegar maður vinnur svona mikið.

En eins og ég sagði hérna fyrst, þá hef ég sjaldan verið hressari með lífið. Þessi nýja áskorun í vinnunni er virkilega spennandi og ég er mjög spenntur fyrir því sem koma skal. Ég er með mikið af hugmyndum í kollinum sem ég myndi vilja koma í framkvæmd, en hef ekki tíma til, allavega fyrst um sinn. Ég gæti þetta ekki án þessarar frábæru konu sem ég á. Þessi ákvörðum um að fara út í eigin rekstur var tekin af okkur saman og hún hefur verið mjög dugleg í að styjða mig í þessu. Við vitum það bæði að þetta verður mikill kúfur svona fyrst, en ég vona nú að einhver rólegri rútína komist á hlutina þegar fram í sækir. Takk fyrir stuðninginn Gulla … ég elska þig mest af öllu og á eftir að sakna þín þegar ég er heima á Íslandi.

Hlynur Snær fer alveg á kostum þessa dagana. Pissu- og kúkvandamál minnka hratt með hverjum deginum sem líður og hann er orðinn svo magnaður í sænskunni. Eins og flest ykkar vita þá er hann Hlynur Snær skapstór strákur sem hefur átt í dálitlum vandræðum með skapið sitt á sínum rúmlega 4 árum. Okkur finnst hann hafa meiri stjórn á því núna en hann hafði. Hann virðist vera meira fær um að takast á við reiðina og sætta sig við að vera reiður. Við reynum mikið að styðja hann í því … en oft er það því miður þannig að við verðum reið líka.

Hann er mjög ánægður bæði á leikskólanum í kirkjunni (myndir á myndasíðunni) og hjá dagmömmunni. Okkur finnst hann hafa lært mikið á leikskólanum, þar sem hann eyður 3 tímum á dag. Og að fá að syngja … jú það hentar okkar manni mjög vel. Hann er sísyngjandi þegar hann kemur heim á daginn … sönglandi glaður (oftast).

Vil svo í lokin óska Bjarna og Bylgju til hamingju með ???????. Hann var svo heppinn að fæðast á afmælisdag langömmu sinnar, þann 19. október.

Ég lofa að gefa mér tíma til að skrifa oftar … þá verður þetta ekki svona langt … :s