— arnigunnar.net

Dagur 2. Punktur.

Jæja … þá er dagur 2 hálfnaður og ég nenni þessu ennþá :) Ég byrjaði vel í gær, skráði 12 útselda tíma … en ég lofa að það verða ekki svona margir tímar á hverjum degi :o

Og í dag tók ég mér fínann matartíma og skellti mér í sundlaugina í Vällingby og fór í æfingasalinn þar. Það var kominn tími á að taka aðeins á því … ætla að reyna að fara í hádeginu allavega tvisvar í viku til að byrja með, ætla ekkert að sprengja mig á fyrsta mánuðinum. Það er líka nauðsynlegt að komast aðeins út úr húsinu þegar maður er að vinna heima alla daga.

Svo er ég að hlusta á Reggea on Ice núna … brings back memories … :)

Hef ekki tíma í meira … verð að … vinna … meira !