Jæja … kominn tími á að segja stóru fréttirnar - arnigunnar.net

Jæja … kominn tími á að segja stóru fréttirnar

Í: Fjölskyldan|Svíþjóð|Vinnan

28 Sep 2006

Ég hef ákveðið að hætta að vinna hjá Travelocity Nordic AB. Ég sagði upp vinnunni fyrir nokkru síðan og síðasti dagurinn minn í vinnunni er á morgun, föstudaginn 29. september 2006.

Ástandið þar hefur ekki verið neitt sérstaklega gott eftir að við (holiday autos) vorum sameinuð Resfeber Sverige. Þeir líta ennþá svo á að við séum litla félagið sem var keypt af stóra félaginu. Án þess að ég fari eitthvað að leka út tölum um fyrirtækið, að þá segja hagnaðartölur deildanna innan fyrirtækisins allt aðra sögu. Og þessi togstreita hefur í för með sér endalausa pólitíska leiki sem ég er ekkert sérstaklega sáttur við að hafa hangandi yfir mér. Sem dæmi má nefna að ég hef verið með 5 mismunandi yfirmenn síðan ég byrjaði hérna fyrir einu og hálfu ári síðan … og það er árangur :o

Ég er bara ekki byggður til að vera að taka þátt í svona bulli. Ég vil bara fá að halda áfram að gera það sem ég geri best, og það er að forrita, hanna og smíða vef-lausnir … og það ætla ég að gera í framtíðinni.

Áður en einhver fer að vonast eftir því að við séum að flytja til Íslands aftur, þá er það hinn mesti misskilningur. Við erum ekki að flytja til Íslands, við ætlum að eiga heima hérna í Svíþjóð áfram, allavega fyrst um sinn.

Og þá er það stóra spurningin … hvað ætlar Árni Gunnar að fara að gera … ???

Já … þegar stórt er spurt er oft fátt um svör, en ekki í þessu tilfelli. Ég er alveg með það á hreinu hvað ég ætla að fara að gera í framtíðinni.

Ég hef ákveðið að stofna mitt eigið fyrirtæki undir nafninu ZEUS web works. Það mun verða staðsett á Íslandi, með íslenska kennitölu og allt þar fram eftir götunum. Ég er þegar kominn með nokkra viðskiptavini sem ég ætla að byggja á og þjónusta eins vel og ég get. Fyrstu mánuðina mun ég vinna hérna heiman frá, ætla að sjá hvernig þetta gengur áður en ég fer að finna mér skrifstofu úti í bæ.

Framundan eru því spennandi tímar hérna í Stokkhólmi. Það verður nóg að gera hjá mér og Gullu. Hún fer í skólann og ég verð að vinna á fullu. Þannig að ef einhver er að spá i að koma í heimsókn … vinsamlega hringið fyrst :)



4 komment við Jæja … kominn tími á að segja stóru fréttirnar

Avatar

Erla

September 28th, 2006 at 20:59

tu tu – til hamingju frændi. Þú átt eftir að standa þig vel í þessu ‘nýja’ starfi. En hva – verður ekki stjanað við mann frá morgni til kvölds ef manni skildi detta í hug að kíkja í heimsókn????????????????
Knús og kreist til ykkar allra, Erla

Avatar

Mamma

September 28th, 2006 at 21:41

Árni Gunnar minn vegni þér vel á nýjum vettvangi. Þetta með heimilið – bara hringja þá kemur það – þ.e.a.s. mamma þín. Kveðja og knús til ykkar. Mamma

Avatar

Árni Gunnar

September 29th, 2006 at 00:27

Takk fyrir það stúlkur :)

Það verður kannski ekki stjanað við ykkur frá morgni til kvölds Erla mín, kannski svona frá hádegi og fram að kaffitíma frekar ;) En mér sýnist nú vera svona frekar mikið að gera hjá þér og þínum … hvenær hafið þið tíma til að koma í afslöppun til Stokkhólms?

Takk fyrir móðir góð … við sjáumst fljótlega :)

Avatar

Lilja og co.

September 30th, 2006 at 12:12

Hæ hæ
Flott hjá ykkur elskurnar, þetta er alveg frábært :)
Hlakka til að sjá ykkur bráðum í Noregi…. blink,blink !
Kær kveðja frá okkur í Noregi

  • Árni Gunnar: Andri minn ... ég er nú ekkert hræddur við áttræðar kjellingar ! [...]
  • Téður Andri Freyr Hansson: mikið ofboðslega hlakkar mig til að komast í fótbolta með þér..... mikið rosalega ætla ég [...]
  • ERla: Til lukku frændi ;)!!! [...]
  • Greta: Nú þá er bara að fljúga til Köben og skipta um vél þar. Getur varla kostað nálægt þessum [...]
  • Árni Gunnar: Þakka hlýleg orð ... við vorum í píanótíma í gær þar sem Elín hrósaði honum mikið fyr [...]

Síðan mín á Facebook

Myndir frá Flickr

  • Cheetah
  • Cheetah
  • Cheetah
  • A baby giraffe
  • Big giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Zebra
  • Buffalo
  • A baby zebra
  • Zebra

ODIN á Facebook

ODIN on Facebook

Flokkarnir

Safnið