— arnigunnar.net

Archive
September, 2006 Monthly archive

Ég hef ákveðið að hætta að vinna hjá Travelocity Nordic AB. Ég sagði upp vinnunni fyrir nokkru síðan og síðasti dagurinn minn í vinnunni er á morgun, föstudaginn 29. september 2006.

Ástandið þar hefur ekki verið neitt sérstaklega gott eftir að við (holiday autos) vorum sameinuð Resfeber Sverige. Þeir líta ennþá svo á að við séum litla félagið sem var keypt af stóra félaginu. Án þess að ég fari eitthvað að leka út tölum um fyrirtækið, að þá segja hagnaðartölur deildanna innan fyrirtækisins allt aðra sögu. Og þessi togstreita hefur í för með sér endalausa pólitíska leiki sem ég er ekkert sérstaklega sáttur við að hafa hangandi yfir mér. Sem dæmi má nefna að ég hef verið með 5 mismunandi yfirmenn síðan ég byrjaði hérna fyrir einu og hálfu ári síðan … og það er árangur :o

Ég er bara ekki byggður til að vera að taka þátt í svona bulli. Ég vil bara fá að halda áfram að gera það sem ég geri best, og það er að forrita, hanna og smíða vef-lausnir … og það ætla ég að gera í framtíðinni.

Áður en einhver fer að vonast eftir því að við séum að flytja til Íslands aftur, þá er það hinn mesti misskilningur. Við erum ekki að flytja til Íslands, við ætlum að eiga heima hérna í Svíþjóð áfram, allavega fyrst um sinn.

Og þá er það stóra spurningin … hvað ætlar Árni Gunnar að fara að gera … ???

Já … þegar stórt er spurt er oft fátt um svör, en ekki í þessu tilfelli. Ég er alveg með það á hreinu hvað ég ætla að fara að gera í framtíðinni.

Ég hef ákveðið að stofna mitt eigið fyrirtæki undir nafninu ZEUS web works. Það mun verða staðsett á Íslandi, með íslenska kennitölu og allt þar fram eftir götunum. Ég er þegar kominn með nokkra viðskiptavini sem ég ætla að byggja á og þjónusta eins vel og ég get. Fyrstu mánuðina mun ég vinna hérna heiman frá, ætla að sjá hvernig þetta gengur áður en ég fer að finna mér skrifstofu úti í bæ.

Framundan eru því spennandi tímar hérna í Stokkhólmi. Það verður nóg að gera hjá mér og Gullu. Hún fer í skólann og ég verð að vinna á fullu. Þannig að ef einhver er að spá i að koma í heimsókn … vinsamlega hringið fyrst :)

Ég sit inni í stofu með eitt stykki Macbook pro ferðatölvu. Af ástæðum sem koma fram síðar, ákvað ég að fá mér nýja ferðavél, hugaða til að vinna á. Þetta er svooooooo flott vél …. ég hef aldrei áður átt svona flotta græju, og hef nú átt þær nokkrar :)

Annars er víst óhætt að sleppa út leyndarmálinu. Gulla var á Íslandi um helgina, og kom heim aftur í dag. Bjarni “bróðir” hélt upp á þrítugsafmælið sitt á laugardaginn og Gulla mæti “surprise” í afmælið, og mátti því ekki minnast á neitt hérna á síðunni. En þar sem afmælið er nú liðið, ætti ekki að vera mikið mál að minnast á þetta hér.

Það var víst alveg svakalegt stuð hjá Bjarna … SingStar og alles í partíinu. Gulla kom heim kl. 4 um nóttina alveg gjörsamlega búin. En hann hafði ekki hugmynd um þetta og var víst mjög glaður að fá uppáhaldssystur sína í heimsókn. Og þetta varð víst einnar-löggu-heimsóknar-partý … ég held að Bjarni hafi verið að syngja of hátt :)

Annars datt mér sú snilldarhugmynd í hug að hringja í Bjarna daginn sem hann átti afmæli … kl. 8 að okkar tíma, sem þýðir kl. 6 að morgni á Íslandi. Ég frétti síðar að þau hefðu farið seint að sofa kvöldið áður (horfðu á Magna eins og allir aðrir á Íslandi). Það var ekkert leiðinlegt að fá að vera fyrst til að óska honum til hamingju, Hlynur Snær söng fyrir hann sænksa afmælissönginn af sinni alkunnu snilld. En ég er ekkert viss um að ég væri nógu hress svona snemma að morgni og fá svona símtal … þar sem ég er nú ekki morgunhressasti maður í heimi. Þannig að til að forðast svona hringingar í framtíðinni, þá bið ég Bjarna afsökunar hér með … sorry dude!

Það var svakalegt stuð hjá okkur feðgunum um daginn, en ég held að hann hafi verið soldið svekktur hvað var erfitt að vekja pabba sinn. Í morgun, þá vaknaði ég rúmlega 8 og þá var hann sofandi við endann á rúminu. Ég vakti hann varlega (þar sem hann er jafn morgunhress og pabbi sinn) og þá vaknaði hann hægt og rólega. Ég spurði hann af hverju hann væri þarna sofandi, og hann sagði með alveg svakalega svekktur: “Þú opnaðir ekki augun”. Hann hefur greinilega reynt að vekja mig, en ekki gengið og farið bara að sofa aftur. En nú verður þetta reynt um hverja helgi hér eftir til að fá hann til að sofa lengur ;)

Sama gerðist á laugardaginn, hann var búinn að fara niður, pissa og teikna aðeins áður en hann kom upp aftur og vakti mig almennilega. Hann hafði pissað aðeins í buxurnar sínar, og var búinn að setja náttbuxurnar og nærbuxurnar í þvottavélina, samviskusamlega.