Jamm … við erum búin að fá nýja barnapíu. Eftir ævintýrin með þá síðustu, þá ákváðum við að fá einhverja sem við þekkjum. 13 ára dóttir einnar sem Gulla hefur verið að hitta reglulega ætlar að passa fyrir okkur endrum og eins. Hún hefur hjálpað mömmu sinni mikið með yngri systkyni sín og setur Hlyn væntanlega ekki fatalausann í rúmið.
Núna þurfum við nefninlega ekkert endilega að fá íslenskumælandi barnapíu … hann er orðinn svo sleipur í sænskunni strákurinn :)
Hann dafnar vel á Legis, fer þangað á hverjum degi og finnst mjög gaman. Hann hefur verið að draga sig svolítið til baka í hópleikjum og var þannig fyrst, en hann er allur að koma til hvað það varðar. Farinn að leika sér meira með öllum hinum krökkunum.
2 komment við Barnapía
Oløf i Norge
September 11th, 2006 at 18:56
Hvað er þetta með Cruise, Gulla ? ég hélt að þú værir gift Árna??
Árni Gunnar
September 11th, 2006 at 21:30
Ég get sko bara sagt þér það að samkvæmt áreiðanlegum heimildum Internetsins, þá er ég sláandi líkur Tom Cruise á hans Top Gun árum :)