Ég fór með Hlyn Snæ í gær á St. Görans Ögonsjukhus í enn eina augnskoðunina. Og augnlæknirinn var svona lika ánægð með hann. Hann skipti á milli augna þegar hann horfði, að því er virtist án áreynslu. Hann sér jafn vel með báðum augum, sem er mjög gott og henni virtist sem hann væri minna rangeygður en hann hefur verið.
Sem sagt, allt mjög góðar fréttir. Hlynur Snær var mjög sáttur við að sleppa við að hafa plásturinn í vetur, og vonandi þarf hann ekki að fá hann aftur. Við höldum hins vegar áfram að fara í eftirlit þangað eitthvað fram eftir aldri býst ég við. Þeir meiga nú eigað það Svíarnir að svona hluti gera þeir vel :)
Við höfðum verið að ræða það að gera aðgerð á auganu sem leitar inn á við, en þar sem það virðist vera að rétta sig af svo að það verður látið bíða enn um sinn.
1 komment við Augnskoðun í gær
Amma
August 25th, 2006 at 11:47
Frábærar fréttir. Vissi reyndar alltaf að gullmolinn myndi spjara sig með augun eins og allt annað. Kveðja Amma Eygló