— arnigunnar.net

Archive
August, 2006 Monthly archive

Jamm … við erum búin að fá nýja barnapíu. Eftir ævintýrin með þá síðustu, þá ákváðum við að fá einhverja sem við þekkjum. 13 ára dóttir einnar sem Gulla hefur verið að hitta reglulega ætlar að passa fyrir okkur endrum og eins. Hún hefur hjálpað mömmu sinni mikið með yngri systkyni sín og setur Hlyn væntanlega ekki fatalausann í rúmið.

Núna þurfum við nefninlega ekkert endilega að fá íslenskumælandi barnapíu … hann er orðinn svo sleipur í sænskunni strákurinn :)

Hann dafnar vel á Legis, fer þangað á hverjum degi og finnst mjög gaman. Hann hefur verið að draga sig svolítið til baka í hópleikjum og var þannig fyrst, en hann er allur að koma til hvað það varðar. Farinn að leika sér meira með öllum hinum krökkunum.

Ég fór með Hlyn Snæ í gær á St. Görans Ögonsjukhus í enn eina augnskoðunina. Og augnlæknirinn var svona lika ánægð með hann. Hann skipti á milli augna þegar hann horfði, að því er virtist án áreynslu. Hann sér jafn vel með báðum augum, sem er mjög gott og henni virtist sem hann væri minna rangeygður en hann hefur verið.

Sem sagt, allt mjög góðar fréttir. Hlynur Snær var mjög sáttur við að sleppa við að hafa plásturinn í vetur, og vonandi þarf hann ekki að fá hann aftur. Við höldum hins vegar áfram að fara í eftirlit þangað eitthvað fram eftir aldri býst ég við. Þeir meiga nú eigað það Svíarnir að svona hluti gera þeir vel :)

Við höfðum verið að ræða það að gera aðgerð á auganu sem leitar inn á við, en þar sem það virðist vera að rétta sig af svo að það verður látið bíða enn um sinn.

Í morgun byrjaði Hlynur Snær á “legis” í kirkjunni hérna rétt hjá okkur. Kirkjan rekur opinn leikskóla, legis og svo fullann alvöru leikskóla. Legis er staður þar sem öllum fjögurra ára börnum er boðið frítt pláss í 3 tíma á dag. Við getum ráðið hvort hann tekur út þennann tíma hjá dagmömmunni, eða förum með hann eitthvað annað.

Við ákváðum að sækja um hjá kirkjunni, Gullu leist svo vel á allt hjá þeim þegar hún var að fara í opnu leikskólana síðasta haust. Þetta virkar þannig að við mætum með gutta til dagmömmunnar kl. 7:30 á morgnana og hún sér um að fara með hann í kirkjuna og ná í hann þangað. Alveg magnað system sem þeir hafa hérna Svíarnir …

Hittum Evu og Staffan aðeins á sunnudaginn. Krakkarnir voru háværir að venju og skemmtu sér vel. Eva var búin að biðja okkur um að taka fullt af myndum af Íslandi og sýna þeim þegar við kæmum til baka. Þar sem veðuraðstæður voru nú ekkert sérstakar þennann tíma sem við vorum þarna og ég hreinlega nennti ekki að taka mikið af myndum, þá ákváðum við að gefa þeim ljósmyndabók frá Íslandi í staðinn. Og þau voru svona líka ánægt með bókina. Staffan kíkir í bókina á hverju kvöldi að skoða það sem fyrir augu ber. Aldrei að vita nema við sýnum þeim allt þetta í eigin persónu næsta sumar :)

Það er búið að vera soldið skrítið að mæta í vinnuna eftir frí. Stemningin hérna er svaka skrítin þessa dagana … alveg massa ládeyða yfir öllum. Ég vona bara að þetta sé svona vottur af for-haust-þunglyndi og allt komist í samt lag fljótlega. Annars verður kannski eitthvað spennandi að frétta af vinnumálum fljótlega … segi betur frá því síðar :)

Gulla er bara á fullu í skólanum í sænskunni og gengur bara vel. Hún er enn ákveðin í að fara í lyfjatækninámið. Nú er hún jafnvel að skoða að taka það í fjarnámi frá Fjölbrautarskólanum í Ármúla. Hún er að tékka á hvað hún fær metið af skrifstofunáminu þar inn og tekur svo ákvörðun.

Hurru … á meðan ég man. Andri: Til hamingju með þú veist hvað … og þú heldur áfram að fara vel með þú veist hvað ;)

Bless í bili …

Ég var að setja inn fullt af myndum úr fríinu okkar á Flickr síðuna mína. Ég hef alltaf haft hug á að birta þær hérna á vefnum, en hef bara ekki gefið mér tíma í að gera það.

Jú … og svo er hægt að nálgast forsíðu Flickr síðunnar minnar með því að smella á myndirnar hér efst á síðunni.

Á Spáni var heitt … og þá meina ég HEITT! Ég er nokkuð viss um að það verði löng bið í að við fjölskyldan förum til Spánar í júlí. 35+ gráður á Celsíus skalanum er bara full mikið fyrir minn smekk. Þegar maður kemur út úr loftkælingunni, þá er bara eins og maður gangi á vegg, svo mikill er hitinn. Við sem vorum rétt orðin vön við að hafa 25-30 stiga hita heima hjá okkur …

Það merkilegasta við flugið til Spánar var að það lagði af stað á réttum tíma, upp á mínútu. Sterling vélin átti að leggja af stað klukkan 7:00. Og nákvæmlega klukkan 7:00 tók hún á loft á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi og lenti svo nánast á réttum tíma í Alicante. Mér finnst það magnað alveg.

Við lentum á þessum líka massa hita vegg í Alicante þegar við fórum að ná í bílaleigubílinn (sem var leigður í gegnum holiday autos að sjálfsögðu. Lögðum af stað til Torreveija og fundum húsið sem við áttum að fá leigt (ekki þökk sé leiðbeiningunum sem fylgdu).

Nánast það fyrsta sem við gerðum var að læsa okkur úti … við gerðum okkur ekki grein fyrir því að það væri ekki hægt að opna hurðina utanfrá, hvort sem hún er læst eða ekki. Við lokuðum því hurðinni þegar við ætluðum út í garðinn fyrir framan húsið. Það var sem betur fer stutt í pabba og Leu og þau hringdu í umsjónarkonuna sem kom og opnaði fyrir okkur (aftur).

Annars höfðum við það mjög fínt á Spáni. Ef við hefðum verið viku í viðbót, hefði Hlynur Snær verið orðinn syndur að fullu, hann var svo duglegur í sundlauginni. Takk Eygló frænka fyrir að leggja grunninn að því :)

Svo tók við Íslandsdvölin, sem er enn í gangi. Við skiluðum stráknum til mömmu nánast strax og við komum hingað til Íslands og fórum vestur. Já vestur, eins langt vestur og hægt er að komast. Mummi og Ólöf giftu sig nefninlega rétt hjá Látrabjargi á laugardaginn. 6 tíma ferðalag á föstudaginn + gifting og fjör á laugardaginn + 6 tíma keyrsla til baka í gær = ég mjög þreyttur eftir ferðina.

En brúðkaupið heppnaðist mjög vel í alla staði. Bæði sögðu já og organistinn spilaði Ring of Fire með Johny Cash í lokin, sem enginn fattaði nema ég víst. Veislan var haldin í gömlum fjárhúsum og Grillmeistarinn sá um að halda mannskapnum mettum. Svaka stuð á hjara veraldar. Til hamingju Mummi og Ólöf!

Svo er stór dagur í dag. Dagur Freyr hefði orðið 5 ára í dag. Það er skrítið til þess að hugsa að fyrir 5 árum hafi maður verið fullur gleði og tilhlökkunar fyrir hönd þessa litla drengs sem fæddist svo fljótt. Við ætlum að halda aðeins upp á daginn með því að sýna okkar nánustu legsteininn sem við höfum sett á leiðið hans. Og svo verður auðvitað smá súkkulaði kaka og kerti fyrir hann eins og Hlyn Snæ á morgun.