Sumaruppfærsla - arnigunnar.net

Sumaruppfærsla

Í: Fjölskyldan|Vinir|Vinnan

18 Jul 2006

Jæja … nú styttist í sumarfríið. Ég vinn þessa vikuna og svo er ég kominn í þriggja vikna frí. Við fljúgum til Spánar og verðum þar í viku með pabba, Leu og Sigurlaugu. Við erum bara að vona að það verði ekki of heitt. Svo taka við 2 vikur á Íslandi. Förum í brúðkaup um verslunarmannahelgina vestur í Breiðuvík, rétt hjá Látrabjargi. Mummi og Ólöf hin norsku ætla að hnýta hnútinn stóra (eitthvað sem fáir af okkar bestu vinum hafa gert … hmm …). Einnig verður haldið upp á afmæli litla stubbs … í tveimur hollum, af því að við þekkjum allt of mikið af fólki.

Um síðustu helgi fórum við í heimsókn til Línu Langsokk, Emils í Kattholti og fleiri persóna úr bókum Astrid Lindgrén. Þriggja tíma keyrsla, hvora leið, en mikil gleði hjá yngsta meðlimnum í fjölskyldunni sem gerði þetta allt þess virði. Hann var enn spenntari en í fyrra, því nú er hann að sjálfsögðu árinu eldri og búinn að kynnast þessum persónum betur eftir endalausann lestur og myndahorf undanfarið ár. Við fjárfestum í ferða-DVD spilara fyrir Hlyn Snæ, þannig að hann gat horft á DVD á leiðinni, sem hitti heldur betur í mark.

Ég skil eiginlega ekki alveg af hverju við erum að fara til Spánar … þvílíkur hiti búinn að vera hérna í sumar. Alveg upp yfir 30 stigin. Og þá verður garðurinn okkar eins og suðupottur … nánast ekki hægt að vera úti. En miðað við blautu gleðina heima, þá erum við ekki að kvarta :)

Lilja og Oliver eru svo að koma á morgun og verða eitthvað fram í næstu viku. Tobbi greyið skilinn eftir heima að vinna fyrir salti í grautinn … en ég nýti tækifærið lílka og verð að vinna mest allann tímann. Það verður örugglega stuð hjá strákunum að leika sér saman.



2 komment við Sumaruppfærsla

Avatar

Erla

July 20th, 2006 at 14:49

Ertu að kvarta yfir því að þekkja of marga?????

Góða ferð til Spánar – sjáumst á Íslandinu góða :)

Avatar

Pabbi

July 21st, 2006 at 11:55

Nú styttist í að við hittumst á Spáni, það verður gaman að fara með guttann í sundlaugina og sjóinn.
Tala nú ekki um að við feðgarnir förum í golfkennslu og svo einhverja hringi líka.
Sjáumst á fimmtudag.

  • Árni Gunnar: Andri minn ... ég er nú ekkert hræddur við áttræðar kjellingar ! [...]
  • Téður Andri Freyr Hansson: mikið ofboðslega hlakkar mig til að komast í fótbolta með þér..... mikið rosalega ætla ég [...]
  • ERla: Til lukku frændi ;)!!! [...]
  • Greta: Nú þá er bara að fljúga til Köben og skipta um vél þar. Getur varla kostað nálægt þessum [...]
  • Árni Gunnar: Þakka hlýleg orð ... við vorum í píanótíma í gær þar sem Elín hrósaði honum mikið fyr [...]

Síðan mín á Facebook

Myndir frá Flickr

  • Cheetah
  • Cheetah
  • Cheetah
  • A baby giraffe
  • Big giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Zebra
  • Buffalo
  • A baby zebra
  • Zebra

ODIN á Facebook

ODIN on Facebook

Flokkarnir

Safnið