— arnigunnar.net

Archive
July, 2006 Monthly archive

Jæja … nú styttist í sumarfríið. Ég vinn þessa vikuna og svo er ég kominn í þriggja vikna frí. Við fljúgum til Spánar og verðum þar í viku með pabba, Leu og Sigurlaugu. Við erum bara að vona að það verði ekki of heitt. Svo taka við 2 vikur á Íslandi. Förum í brúðkaup um verslunarmannahelgina vestur í Breiðuvík, rétt hjá Látrabjargi. Mummi og Ólöf hin norsku ætla að hnýta hnútinn stóra (eitthvað sem fáir af okkar bestu vinum hafa gert … hmm …). Einnig verður haldið upp á afmæli litla stubbs … í tveimur hollum, af því að við þekkjum allt of mikið af fólki.

Um síðustu helgi fórum við í heimsókn til Línu Langsokk, Emils í Kattholti og fleiri persóna úr bókum Astrid Lindgrén. Þriggja tíma keyrsla, hvora leið, en mikil gleði hjá yngsta meðlimnum í fjölskyldunni sem gerði þetta allt þess virði. Hann var enn spenntari en í fyrra, því nú er hann að sjálfsögðu árinu eldri og búinn að kynnast þessum persónum betur eftir endalausann lestur og myndahorf undanfarið ár. Við fjárfestum í ferða-DVD spilara fyrir Hlyn Snæ, þannig að hann gat horft á DVD á leiðinni, sem hitti heldur betur í mark.

Ég skil eiginlega ekki alveg af hverju við erum að fara til Spánar … þvílíkur hiti búinn að vera hérna í sumar. Alveg upp yfir 30 stigin. Og þá verður garðurinn okkar eins og suðupottur … nánast ekki hægt að vera úti. En miðað við blautu gleðina heima, þá erum við ekki að kvarta :)

Lilja og Oliver eru svo að koma á morgun og verða eitthvað fram í næstu viku. Tobbi greyið skilinn eftir heima að vinna fyrir salti í grautinn … en ég nýti tækifærið lílka og verð að vinna mest allann tímann. Það verður örugglega stuð hjá strákunum að leika sér saman.

Hafði föstudagsleikina rétta. Þýskaland og Ítalía komust áfram. Laugardagurinn var hins vegar hræðilegur. Tippaði á England og Brassana, en bæði lið töpuðu.

Hefði miklu frekar viljað sjá England en Portúgal áfram. Þessar vælu kjellingar í Portúgalska liðinu eru bara alveg að fara í taugarnar á mér. Christiano Ronaldo þar fremstur í flokki … kæmi mér ekki á óvart að hann yrði ekki vinsælasti maðurinn í búningsherberjum Man Utd þegar leikmenn hittast aftur eftir sumarfrí … ef hann verður þá ennþá hjá liðinu, en hann er víst búinn að gefa það út sjálfur að Real Madrid hafi áhuga á honum.

Sætti mig hins vegar við sigur Frakka á Brasilíu. Frakkarnir voru massífir á móti Spáni og enn massívari á móti Brasilíu. Öll lið sem halda núllinu gegn þeim gulu, fá prik í kladdann hjá mér. Zidane var stórkostlegur í leiknum … þrjátíuogfjögurra (34) ára gamall. Magnað alveg.

Á laugardaginn fórum við með Evu, Staffan og fjölskydu út á Ekerö að baða í lóni sem er þar. Það vær vægast sagt heitt … um 28 stiga hiti og sól allann daginn. Það var mjög gaman þar, svo var farið heim til þeirra, pantaðar pizzur og horft á England tapa. Staffan kom svo heim til mín og við sáum Frakkana taka Brasilíu. Góður dagur á laugardaginn.

Tengdó komst ekki með, þar sem hún er ein brunarúst … fær varla að fara út úr húsi. Hún er eins og indjáni. Var víst aðeins of mikið í sólinni á föstudaginn.

Svo var bara rólegt heima í gær …