— arnigunnar.net

Archive
June, 2006 Monthly archive

Ójá … þessi helgi var sko smekkfull af viðburðum að það hálfa væri miklu meira en nóg.

Á fimmtudaginn fengum við óvænta heimsókn. Bjarni “bróðir” og Bylgja birtust á tröppunum hjá okkur um fimm leytið, algjörlega óvænt. Bjarni byrjaði að senda okkur SMS skilaboð þegar hann var á leiðinni með lestinni til okkar. Sendi nöfn á lestarstöðvum með reglulegu millibili. Gulla ætlaði nú varla að trúa því að hann gæti verið að koma, og ekki ég heldur. Hún hringdi í hann, þar sem hann gat víst ekki talað við hana … var að afgreiða kúnna og sagðist bara hafa verið að stríða henni með lestarstöðvarnar.

Við lögðum þetta þá bara á hilluna … hann var ekkert á leiðinni. Svo þegar við fórum að fá SMS skilaboð um strætóstoppistöðvar í nágrenninu, þá hætti okkur að lítast á blikuna, það er nú varla að hann viti hvaða strætóleiðir ganga til okkar. Gulla ákvað því að “fara út með ruslið” (lesist: fara og kíkja út á strætóstoppistöð) og viti menn … Bjarni og Bylgja mætt á svæðið. Þokkalega sem við vorum hissa.

Við áttum góðar stundir með þeim um helgina. Takk fyrir komuna og sörpræsið :)

Svo var gerður eitt stykki pallur í garðinn um helgina. Frederik, maður vinkonu hennar Gullu, kom mér af stað á föstudaginn og við Bjarni tókum við og komum upp grindinni sjálfir. Bjarni var ómetanleg hjálp … magnað að hann nenni að koma í heimsókn bara til að smíða. Danke, danke.

Svo kom Frederik í gær og við kláruðum að klæða pallinn þegar Bjarni og Bylgja voru farin. Og svo var auðvitað grillað í gærkvöldi á nýja pallinum :)

Hlaupabólan hefur runnið sitt skeið á enda, sem betur fer. Bólurnar eru að hverfa og Hlynur Snær fór til dagmömmunnar í morgun. Undanfarna 2 daga hefur sá stutti verið verulega pirraður á því að hanga heima og gera “ekki neitt”.