— arnigunnar.net

World Cup … og fleira

Ja … nú er maður kominn heim aftur eftir mjög svo vel heppnaða ferð til Þýskalands að horfa á HM í knattspyrnu. Það er náttúrulega hvers manns draumur að komast á HM og þessi draumur rættist hjá okkur vinunum í síðustu viku. 4 dagar í Hamburg, 1 knattspyrnuleikur og minningar að eilífu :)

Strákarnir, Gummi, Andri og Arnar lögðu af stað snemma á þriðjudagsmorguninn, eins og Íslendinga er von og vani þegar ferðalög eru annars vegar. Ég lagði hins vegar ekki af stað fyrr en um 3 leytið upp á flugvöll. Við hittumst svo fyrir framan hótelið að kvöldi og vorum fljótir að skella okkur í bæinn.

Frúin í móttökunni hafði sagt strákunum frá einhverjum stað þar sem hægt var að horfa á leikinn, og átti hann að vera við ströndina. Við tókum leigubíl frá hótelinu og sökum annálaðar enskukunnáttu þjóðverja fundum við þann stað ekki. Skelltum okkur þá bara á FanFest (hún skildi það bílstjórinn okkar) og horfðum á Brasilíu – Króatíu ásamt nokkrum öðrum þúsundum stuðningsmanna. Mikil stemning og stuð.

Eftir hund-leiðinlegann leik, var bara haldið heim á leið og nett slappað af. Við Andri vorum saman í herbergi og þurfti ég því að þola hroturnar hans í 3 laaaangar nætur.

Daginn eftir var dundað sér aðeins, verslað smávegis og svo fórum við niður að höfn. Þar vorum við næstum búnir að hafa Arnar í það að hoppa út í höfnina í öllum fötunum. Videoið hér fyrir neðan segir meira en mörg orð.

Þar sem hann Arnar vitkaðist að lokum löbbuðum við okkur upp á FanFest og horfðum á Þjóðverja sigra Pólland með 1 marki gegn engu. Mér var sagt síðar að 60.000 Þjóðverjar hefðu horft á leikinn þar og 10.000 aðrir hefðu verið vísað frá. Og að sjálfsögðu varð allt vitlaust þegar þeir loksins komu boltanum í netið eftir stanslausa sókn allann leikinn.

Svo tók við leikurinn sjálfur. Við vorum komnir upp á völl um hálf 1 leytið, en leikurinn átti að hefjast klukkan 3. Við tókum góðann göngutúr í kringum völlinn og fórum svo inn. Keyptum okkur Ekvador treyjur og tókum þátt í leiknum af mikill innlifun.

Ferðin öll var alveg meiriháttar skemmtilegt og enn betra að fá að upplifa HM í fótbolta með mínum bestu vinum. Og svo smá nóta til eiginkvennanna: Við höfum ákveðið að fara til Suður-Afríku árið 2010 og horfa á HM þar … gera þetta að reglulegum viðburði.

Helgin var svo alveg frábær. Eyddum laugardeginum hjá Evu og Staffan. Þau voru að halda upp á þrefalt afmæli, Samúel 7 ára og tvíburarnir þriggja. Tvíburarnir, David og Rebecka, leika sér mikið við Hlyn þegar þau hittast og það var engin breyting á því á laugardaginn. Mikið hlaupið og skemmt sér. Hlynur Snær fékk meira að segja nammi úr nammi-trénu, en fannst það bara ekkert gott og var þá hæst ánægður með að fá piparkökur í poka í staðinn.

Í gær komu svo Júlíta, Christian og Pjotr í heimsókn í hádeginu og við áttum góðann dag saman í góða veðrinu.

Og svo var vinna í dag … stuð … og jú … tölvan mín dó í gær. Just my luck :(

Árni Gunnar