Game ON !
Fyrri hálfleikur að verða búinn í opnunarleik HM, Þýskalands og Kosta Ríka og staðan er 2-1 fyrir Þjóðverjana. Hörkuleikur það sem af er, Lahm skoraði þessa líka snudduna fyrir heimamenn á 6. mínútu, setti boltann beint í sammarann og inn. Það er einmitt gaman að Kosta Ríka er annað þeirra liða sem við félagarnir sjáum á fimmtudaginn í næstu viku í Hamborg.
Maður fær alveg þvílíkann fiðring þegar leikirnir fara í gang … þarna verð ég í næstu viku :)
Á morgun koma hingað Svíar að horfa á leik Trinidad og Tobago og Svíþjóðar. Það verður sett eitthvað kjöt á grillið um 5 leytið og svo horft á leikinn … vonandi vinna Svíarnir, annars koma þau aldrei aftur :o
Ó … og svo eigum við Gulla 5 ára brúðkaupsafmæli í dag … og sumir eru heima hjá sér en sumir ekki … ég segi ekki meira.
Jæja … seinni hálfleikur bíður. Síðar …