Og það verður farið snemma heim, það er alveg ljóst!
Þýskaland – Argentína er fyrst á dagskránni kl. 5. Af einhverjum skrítnum ástæðum þá hef ég alltaf borið sérstakar taugar til Þýska landsliðsins. Ég var alveg sérstakur aðdándi Lothar Matthaus þegar hann var sem bestur (Italía 1990) og dáðist að því hversu lengi hann gat haldið áfram að spila. Margir segja að þeir spili leiðinlegann fótbolta, en allir leikir sem þú vinnur eru skemmtilegir … þannig er það nú bara. Ég get nú ekki sagt að fólk á Íslandi hafi verið neitt sérstaklega ósátt við Gauja Þórðar sem landsliðsþjálfara … og hann gerði í því að spila “leiðinlegann bolta” á móti stærri liðunum. Mín spá: 3-2 fyrir Þýskaland. Klose heldur áfram að skora og Ballack setur úrslitamarkið á 82. mínútu. Messi setur eitt fyrir Argentínu.
Ítalía – Úkraína. Þarna hélt ég með mótherjum þeirra í 16 liða úrslitunum. Hefði viljað sjá þennan leik Ástralía – Sviss, en svona er þetta. Ég fæ víst ekki að ráða þessu. Ítalía vinnur allavega. Luca Toni kemst í gang loksins og setur 2 í þessum leik. 2-0.
England – Portúgal. Því miður þá sigraði Portúgal Holland í 16 liða úrslitum í miklum spjalda leik. Ég hefði viljað sjá Hollendingana áfram. Er mikill aðdáandi Marco Van Basten þjálfara Hollendinga. Honum hefur tekist að búa til lið úr öllum þeim stjörnum sem Hollendingar eiga. Það fyrsta sem hann gerði var að henda út gömlum köllunum sem voru orðnir áskrifendur að sæti í liðinu og taka inn unga og óreyndari menn. Og það heppnaðist svona líka glæsilega. Leikurinn gegn Portúgal var fyrst leikurinn sem hann tapar sem landsliðsþjálfari í þau tvö ár sem hann hefur stjórnað. Inni í þeirri tölu eru ekki vináttuleikir. Magnað alveg. Ó … meðan ég man … Portúgal vinnur, kellirngarnar Ronaldo og Figa setja sitt hvort markið og Roooooney eitt fyrir England.
Brasilía – Frakkland. Rematch frá úrslitaleiknum 1998 þar sem Frakkar unnu Brasilíu 3-0. Ronaldo var þá heillum horfinn, Zizu skoraði 2 með skalla og Emmanuel Petit 1 í lokin. Brassarnir hafa keyrt á hálfum hraða í keppninni og eiga fullt af orku inni. Frakkarnir voru massívir gegn Spáni, en hafa ekkert í Brassana að segja. 3-1 fyrir Brasilíu.