Kominn aftur heim, og aftur í vinnu
Jæja … heilaleikfiminni lokið í bili. Sat í 3 daga í síðustu viku og þar sem reynt var að troða visku í hausinn á mér. Gekk svona og svona held ég bara. En þetta var mjög áhugavert, ég er bara ekki vanur því að sitja á fyrirlestrum og taka við upplýsingum í þrjá heila daga.
Hótelið sem ég var á var fínt, ég hitti Erlu, Kalla og co á miðvikudagskvöldið sem var alveg frábært. Trausti Þór sagði mér leyniorðið að hliðinu sem ég ætla ekki að endurtaka hér. Á fimmtudagskvöldinu fór ég svo út að borða með Erlu frænku. Fengum okkur ágætis indverskann mat. En félagsskapurinn var tipp-topp. Takk fyrir mig Erla mín :):)
Síðasta helgi var löng helgi í Bretlandi, sem þýddi að Heathrow var gjörsamlega stappaður af fólki … og þá meina ég stappaður. Það var gjörsamlega fólk út um allt! Og svo þegar ég bókaði mig inn, þá var mér sagt að ég kæmist kannski ekki heim það kvöldið, vélin væri yfirbókuð.
En sem betur fer þá komst ég í gegnum fólksmergðina og um borð … millilenti í Köben og var svo kominn heim um hálf-eitt-leytið.
Svo var rosa gaman að hafa Tobba og Lilju í heimsókn … þau eru á leiðinni heim akkúrat núna. Mikið spjallað og miiiikið borðað. Hlynur Snær og Oliver er búnir að brasa mikið saman um helgina … vilja helst gera allt eins. Ef Hlynur Snær pissar, verður Oliver að fara líka … og öfugt.
Og svo er HM að nálgast !! Digital boxið komið heim og nú er bara að tengja draslið svo að maður geti nú horft á einhverja leiki í almennilegum gæðum á nýja sjónvarpinu :)
Gott í bili …