Yup. Fer í næstu viku til London á námskeið/ráðstefnu á vegum NNGroup. Þetta er ráðstefna í “web usability” og er mjög spennandi. Fæ að hitta the usability guru Jakob Nielsen. Hlakka ekkert smá til að fara.
Og svo verður tækifærið auðvitað notað og Erla frænka og co heimsótt. Það verður gaman að hitta ballerínuna, sunddrottninguna, fótboltastrákinn, bankamanninn og námsfrúnna.
Svo veit ég ekki alveg hvað mér á að finnast um athæfi Sylvíu Nóttar í Aþenu. Það er hægt að vera fyndinn, en ég held að hún hafi gengið of langt. Þeir einu sem föttuðu brandarann, og föttuðu að þetta var í raun brandari, vorum við Íslendingarnir. Allir sem ég tala við hérna skilja hvorki upp né niður í henni Miss Night. Ég held að hún hafi þarna skotið alla þjóðina í fótinn … kannski bara ágætt að það eru bara fyrrverandi austantjaldsþjóðir og Svíar sem horfa orðið á Júróvisjón. Það verða líklega fáir Svíar á ferð í miðborg Reykjavíkur í sumar.
Við Gulla vorum eiginlega bara sátt við að Miss Night komst ekki lengra. Við erum nefninlega að fara í partý í kvöld og ég er ekkert viss um að þjóðarstoltið hefði komist með ef hún væri með í kvöld. Þannig að við ætlum að halda með Carolu í kvöld, eins og allir hinir Svíarnir.
Á meðan ég er í burtu ætla Tobbi, Lilja og Oliver að koma í heimsókn. Það verður örugglega mikið fjör hjá strákunum að leika sér saman. Ég rétt næ í endann á heimsókninni þeirra, ég kem heim frá London á föstudagskvöldið og þau fara ekki fyrr en á mánudaginn.
2 komment við London calling
Erla frænka
May 21st, 2006 at 22:08
hef samkvæmt áreiðanlegum heimildum “Slefað og sleikt” pressunnar í Svíþjóð að hin sænska Carola sé alger andstæða Silvíu – þ.e. kemur vel fyrir út á við en er innantóm og hrokagjörn í raun og veru!!!
Árni Gunnar
May 22nd, 2006 at 01:34
Ójá … það er sko alveg rétt hjá þér frænka góð … það er algjört tómarúm inni í þessari blessuðu Carolu. Og það litla sem finnst er hrokafullari en andsk…