— arnigunnar.net

Hann er bara snillingur

Hlynur SnærHann Hlynur Snær. Hann er snillingur. Ég veit ekki hvernig hann fer að þessu, en þvílíkt sem barnið er farið að tala sænsku. Í gær komu nokkrar konur í heimsókn til Gullu á einhverja barnafata kynningu. Hlynur Snær var ennþá vakandi þegar þær fyrstu komu og minn bara spjallaði við þær eins og ekkert væri sjálfsagðara! Á sænsku!

Erla frænka hefur örugglega gengið í gegnum þetta líka að sjá börnin sín tala annað tungumál … mér finnst þetta svo skrítið, en rosalega gaman og ótrúlega gott fyrir Hlyn Snæ að fá þetta inn í hausinn núna.

Sumir virðast eitthvað vera að misskilja ákall mitt um hjálp við sjónvarpskaup. Það þarf ekkert að sannfæra frúna, eða fá hana til að samþykkja kaup á nýju sjónvarpi. Ég þarf að sannfæra sjálfann mig um að eyða öllum þessum peningum í sjónvarp. Það er heila málið.