— arnigunnar.net

Það er víst betra að borga reikningana sína

Já … ég komst að því (svo og allir sem reyndu að fara inn á vefinn um helgina) að það er betra að borga reikningana sína á réttum tíma. Ég hafði víst gleymt að borga elsku Bandaríkjamönnunum sem eru svo góðir að geyma vefinn minn á tölvunum sínum. Og þeir bara tóku mig úr sambandi :( En ég var snöggur til og borgaði þeim það sem upp var sett og nú ætti allt að vera í lagi. Vonandi að ég hafi ekki eyðilagt helgina fyrir einhverjum …

Sumarið kom með sprengju hérna um helgina, líkt og á Íslandi. 20-25 stiga hiti og glampandi sól alla helgina, og á að vera alla vikuna og fram á næstu helgi. Og þessi sumarsprengja var ekki að fara vel í frjókornaofnæmisfólkið hérna úti … það voru víst öll meðul búin í flestum apótekum í Stokkhólmi í gær. Maður verður því að þola hnerrandi konur í lestinni og horlekandi unglinga í strætó á meðan þetta gengur yfir.
Hlynur Snær fékk að vera heima veikur í gær. Hann hefur verið að hósta soldið mikið undanfarið og við ákváðum að hafa hann heima í gær. Hann var svo sem ekkert ósáttur við það, notaði tækifærið óspart og spurði hvort hann mætti ekki horfa á spólu af því að hann væri svo svakalega veikur. En hann skrattaðist til dagmömmunnar í morgun, svaka glaður og kátur.

Það gerðist reyndar í fyrsta sinn í langann, langann tíma í morgun að hann vaknaði á eftir okkur hjónunum. Við lágum bara upp í rúmi og vorum að spjalla þegar hann vaknaði í sínu herbergi. Og svona líka vel sofinn og glaður (hann á það sko til að vera jafn morgunglaður og pabbi sinn). Það er bara vonandi að þetta sé byrjunin á ánægjulegri rútínu.

Við ætlum svo að fara að skipta út pallinum í garðinum … hann er orðinn gamall og lúinn. Við ætlum líka að stækka hann aðeins, bæði lengra frá húsinu og hafa hann aðeins breiðari líka. Þetta verður svona Vesturbergs-baðherbergis-project. Ég ætla að gera þetta að mestu sjálfur, en fæ vonandi einhverja hjálp frá Svavari … þetta er aðallega spurningin um að koma sér af stað og hafa undirlagið og grindina rétta. En ef einhvern langar í heimsókn og smíða með mér pall, þá er sá hinn sami velkominn hvenær sem er … ég skal meira að segja kaupa bjór (ef vilji er fyrir því).

Svo fer nú að styttast í HM ! Það er allt orðið klappað og klárt hjá okkur strákunum. Öll flug, hótel og miðar bókaðir. Miðarnir á leikinn komu til mín í síðustu viku og við fáum sæti á fínum stað. Ég hlakka mikið til að hitta strákana og skemmta okkur saman í Hamborg … það verður geðveikt !