Amm …. tókum eftir því í gær að litlar bólur voru farnar að koma fram hjá Hlyni Snæ. Það ágerðist eftir því sem leið á kvöldið og í nótt þegar ég fór með hann að pissa, var kominn góður slatti af bólum. Hann er með smá hita með þessu, en ekkert svakalegt. Og jú … ég á eftir að taka fullt af myndum þegar bólurnar verða meira áberandi :)
Jæja … heilaleikfiminni lokið í bili. Sat í 3 daga í síðustu viku og þar sem reynt var að troða visku í hausinn á mér. Gekk svona og svona held ég bara. En þetta var mjög áhugavert, ég er bara ekki vanur því að sitja á fyrirlestrum og taka við upplýsingum í þrjá heila daga.
Hótelið sem ég var á var fínt, ég hitti Erlu, Kalla og co á miðvikudagskvöldið sem var alveg frábært. Trausti Þór sagði mér leyniorðið að hliðinu sem ég ætla ekki að endurtaka hér. Á fimmtudagskvöldinu fór ég svo út að borða með Erlu frænku. Fengum okkur ágætis indverskann mat. En félagsskapurinn var tipp-topp. Takk fyrir mig Erla mín :):)
Síðasta helgi var löng helgi í Bretlandi, sem þýddi að Heathrow var gjörsamlega stappaður af fólki … og þá meina ég stappaður. Það var gjörsamlega fólk út um allt! Og svo þegar ég bókaði mig inn, þá var mér sagt að ég kæmist kannski ekki heim það kvöldið, vélin væri yfirbókuð.
En sem betur fer þá komst ég í gegnum fólksmergðina og um borð … millilenti í Köben og var svo kominn heim um hálf-eitt-leytið.
Svo var rosa gaman að hafa Tobba og Lilju í heimsókn … þau eru á leiðinni heim akkúrat núna. Mikið spjallað og miiiikið borðað. Hlynur Snær og Oliver er búnir að brasa mikið saman um helgina … vilja helst gera allt eins. Ef Hlynur Snær pissar, verður Oliver að fara líka … og öfugt.
Og svo er HM að nálgast !! Digital boxið komið heim og nú er bara að tengja draslið svo að maður geti nú horft á einhverja leiki í almennilegum gæðum á nýja sjónvarpinu :)
Gott í bili …
Yup. Fer í næstu viku til London á námskeið/ráðstefnu á vegum NNGroup. Þetta er ráðstefna í “web usability” og er mjög spennandi. Fæ að hitta the usability guru Jakob Nielsen. Hlakka ekkert smá til að fara.
Og svo verður tækifærið auðvitað notað og Erla frænka og co heimsótt. Það verður gaman að hitta ballerínuna, sunddrottninguna, fótboltastrákinn, bankamanninn og námsfrúnna.
Svo veit ég ekki alveg hvað mér á að finnast um athæfi Sylvíu Nóttar í Aþenu. Það er hægt að vera fyndinn, en ég held að hún hafi gengið of langt. Þeir einu sem föttuðu brandarann, og föttuðu að þetta var í raun brandari, vorum við Íslendingarnir. Allir sem ég tala við hérna skilja hvorki upp né niður í henni Miss Night. Ég held að hún hafi þarna skotið alla þjóðina í fótinn … kannski bara ágætt að það eru bara fyrrverandi austantjaldsþjóðir og Svíar sem horfa orðið á Júróvisjón. Það verða líklega fáir Svíar á ferð í miðborg Reykjavíkur í sumar.
Við Gulla vorum eiginlega bara sátt við að Miss Night komst ekki lengra. Við erum nefninlega að fara í partý í kvöld og ég er ekkert viss um að þjóðarstoltið hefði komist með ef hún væri með í kvöld. Þannig að við ætlum að halda með Carolu í kvöld, eins og allir hinir Svíarnir.
Á meðan ég er í burtu ætla Tobbi, Lilja og Oliver að koma í heimsókn. Það verður örugglega mikið fjör hjá strákunum að leika sér saman. Ég rétt næ í endann á heimsókninni þeirra, ég kem heim frá London á föstudagskvöldið og þau fara ekki fyrr en á mánudaginn.
Akkúrat núna situr svona sjónvarpstæki inni í stofu hjá mér … og svona lílka rosalega fancy smancy. Fór og náði í það í gær … villtist reyndar á leiðinni :s Eva, vinkona hennar Gullu var svo góð að fara og ná í strákinn til Terese dagmömmunnar á meðan ég náði áttum.
Þetta er sem sagt 40″ Samsung LCD sjónvarp, HD Ready og alles :)
Ég rétt náði á lagerinn áður en lokaði og fékk þennann líka risavaxna kassa afhentann. Eins gott að familían var ekki með, ég hefði þurft að skilja þau eftir. En sem betur fer er það létt og það var lítið mál að smokra því inn í bílinn.
Og það var horft á júróvisjón í nýja sjónvarpinu … ekki það að Sylvía Nótt hafi verið eitthvað betri í því nýja en því gamla … mæ god.
Ó .. já … meðan ég man. Andri! Mundu! Það er útvarp á fancy smancy símanum þínum !!!
Hann Hlynur Snær. Hann er snillingur. Ég veit ekki hvernig hann fer að þessu, en þvílíkt sem barnið er farið að tala sænsku. Í gær komu nokkrar konur í heimsókn til Gullu á einhverja barnafata kynningu. Hlynur Snær var ennþá vakandi þegar þær fyrstu komu og minn bara spjallaði við þær eins og ekkert væri sjálfsagðara! Á sænsku!
Erla frænka hefur örugglega gengið í gegnum þetta líka að sjá börnin sín tala annað tungumál … mér finnst þetta svo skrítið, en rosalega gaman og ótrúlega gott fyrir Hlyn Snæ að fá þetta inn í hausinn núna.
Sumir virðast eitthvað vera að misskilja ákall mitt um hjálp við sjónvarpskaup. Það þarf ekkert að sannfæra frúna, eða fá hana til að samþykkja kaup á nýju sjónvarpi. Ég þarf að sannfæra sjálfann mig um að eyða öllum þessum peningum í sjónvarp. Það er heila málið.
Það er spurningin sem brennur á mér þessa dagana … á ég að kaupa mér nýtt sjónvarp eða ekki að kaupa mér nýtt sjónvarp? Hmmmmm … vill einhver hjálpa??