— arnigunnar.net

Dagarnir heima á Íslandi

Jæja … þá er kominn páskadagur. Dagarnir síðan á þriðjudaginn hafa verið ótrúlega fljótir að líða. Búin að hitta gott og skemmtilegt fólk, borðað góðann íslenskann mat (svið í gærkvöldi) og haft það bara mjög gott.

Það hefur verið soldið span á okkur síðan ég lenti síðastliðinn þriðjudag. Kvöldinu var nú bara tekið rólega. Hlynur fékk að sofa hjá ömmu sinni og miðvikudagurinn fór svo í vinnufundi hjá mér. Um kvöldið var hist heima hjá Eygló þar sem Gunnar, Isabella og fjölskylda voru líka. Við komum heim með Hlyn kl. 11 um kvöldið … sem er soldið seint þegar minn er annars vegar.

Fimmtudagurinn var tekinn snemma og haldið í Grafarvoginn, þar sem Sverrir og Greta voru búin að setja upp þetta líka fínasta morgunverðarboð fyrir okkur. Baldur, Elísa og Hlynur Snær fengu bíósýningu í kjallaranum á nýja húsinu þeirra. Kvöldinu var svo eytt með vinahópnum okkar, Andra, Lólý, Gumma og Hönnu og öllum barnaskaranum. Nóatúnsborgarar á grillinu … mmmmm.

Föstudagurinn langi var einnig tekinn snemma. Örn, Björg og co voru búin að baka bollur og súkkulaðiköku handa okkur. Við eyddum mestum hluta dagsins hjá þeim og fórum svo til mömmu gömlu í mat. Skildum drenginn þar eftir og fórum til Írisar og Ívars í stutta heimsókn.

Gærdagurinn var nú ekki í eins miklu stressi. Náðum í þann stutta til ömmu sinnar og fórum með hann og Sigurlaugu Birnu á Kalla á þakinu í Borgarleikhúsinu. Það var ekkert smávegis gaman, Hlynur Snær skemmti sér konunglega. Og svo voru svið í matinn um kvöldið að hætti pabba og Leu … mmmmm … gott, gott.

Í dag er meiriháttar leti dagur. Horft á sjónvarp og sá Liverpool sigra Blackburn á Ewood Park. Stutt páskaeggjaleit í morgun og svo reynt að koma einhverju af þessu risastóra páskaeggi ofaní barnið … það gengur reyndar ekkert mjög vel, frekar illa ef ég segi nú alveg satt og rétt frá.

Humar í kvöld og kannski að skoða íbúðina hjá númer 1.

Morgundagurinn er ekki mikið planaður … nokkrir sem við ætlum að kveðja sérstaklega og svo er matur hjá Bjarna bróður (hennar Gullu). Ég pantaði lambakjöt á diskinn minn :)

Svo er það bara Sverige á þriðjudaginn og vinna á miðvikudaginn. Stuð.