Jæja … loksins á leiðinni heim
Amm. Loksins er biðin á enda. Einveran búin. Vinnutörninni lokið í bili og langþráð frí í höfn. Eftir ca 3 tíma legg ég af stað til Íslands með flugvél Icelandair og get varla beðið eftir að sjá konu og barn aftur.
Þau hafa að mér skilst skemmt sér mikið og vel heima á Íslandi þessa 2 og hálfa viku, þó að Hlynur Snær sé orðinn soldið þreyttur á þessum endalausu heimsóknum. Og því miður fyrir hann, þá er þeim ekki lokið. Það er fullt af fólki sem við eigum eftir að hitta og heimsækja.
Jæja … ætla að klára að pakka og drífa mig út á flugvöll. Sjáumst heima á Íslandi ! (nema Erla, Kalli og börn, því þau ætla til Ítalíu … góða skemmtun þar).