Hlynur Snær fer á kostum
Í gær 5.apríl fórum við Hlynur Snær í heimsókn til Hönnu og Tómasar Loga sem var alveg yndisleg eins og allar okkar heimsóknir. Hlynur Snær fór alveg á kostum í þessari heimsókn.
Við Hanna sátum inni í stofu í rólegheitunum, spjölluðum og drukkum þetta líka góða kaffi (hef aldrei smakkað annað eins) og Hlynur Snær að leika inní herbergi hjá Lovísu Mist. Allt í einu kemur drengurinn framm á tippinu og segir: “mamma ég er búinn að pissa alveg sjálfur”.
Ég lít á Hönnu og spyr Hlyn Snæ hvar hann hafi pissað. “Nú í koppinn” sagði hann þá. Hanna sagði að það væri nú ekki til koppur á heimilinu svo að ég bað hann vinsamlega að sína mér koppinn. Hann leiddi mig inní herbergi viti menn hann hafði tekið upp á því að pissa í Baby Born kopp og ekki einn heldur tvo og ekki nóg með það hann hafði tekið upp á því að hella pissinu yfir í pott sem stóð á dóta eldavélinni hennar Lovísu Mist.
Ég segi nú ekki annað en það er ótrúlegt hverju þessi blessuð börn taka upp á og hvað skyldi hann gera í næstu heimsókn það er spurning.