— arnigunnar.net

Archive
March, 2006 Monthly archive

Halló allir.

Í dag tek ég í notkun nýtt kerfi fyrir bloggið mitt. Ég er hættur að finna upp hjólið og smíða þetta sjálfur, hef nóg annað að gera. Frítt PHP kerfi sem heitir WordPress varð fyrir valinu og hef ég flutt öll blogg og komment sem ég var með úr mínu “kerfi” í þetta (og það var miklu meiri vinna en ég bjóst við).

Þetta kerfi býður líka upp á að frúin á heimilinu geti bloggað á auðveldann hátt … þannig að það er aldrei að vita nema hún taki sig til og skrifi smá líka :)

Með þessu kerfi er hægt að búa til myndagallerí úr myndum sem eru hostaðar hjá Flickr, og mun ég taka það í notkun innan tíðar … vonandi. In the meantime, þá getið þið alltaf kíkt inn á Flickr, það er fullt af myndum þar.

Það er fullt af möguleikum í kerfinu sem ég á eftir að setja hingað inn, þetta verður soldið “bare bones” svona til að byrja með. Þið verðið bara að hafa smá þolinmæði (mikið að gera).

Enjoy !

Fyrst má telja að ég setti inn nokkrar myndir á Flickr síðuna mína. Ég ætla að breyta aðeins albúmakerfinu mínu hérna og nota myndirnar þaðan. Það er hins vegar ekki komið í gagnið, þannig að linkur yfir á nýju myndirnar verður að duga í bili. Ég stefni á að setja inn nýjar myndir þarna í hverjum mánuði (yeah right …)

Sumarfríið er farið að taka á sig mynd. Í júní fer ég að sjálfsögðu til Þýskalands með strákunum. Ég hlakka mikið til að hitta þá eftir langa fjarveru frá Íslandi. Við verðum í Hamborg í 3 daga saman og sjáum einn leik á HM. Í lok júlí ætlum við svo að fara viku til Spánar. Lea fékk hús leigt þar og við verðum hjá þeim í viku. Fljúgum til Madrid og verðum þar í eina nótt og keyrum svo niður til Alicante. Fljúgum frá Spáni til Íslands þar sem haldið verður á Vestfirðina og Ólöf og Mummi heiðruð með nærveru okkar í brúðkaupi þeirra. Þar höfum við fengið leigt hús með Tobba, Lilju og Badda. Það verður alveg örugglega fín Verslunarmannahelgi. Svo tekur við smá kafli í Reykjavík þar sem verður haldið upp á afmæli drengjanna minna tveggja. Sá eldri, Dagur Freyr, fær veglega afmælisgjöf að þessu sinni, við ætlum að setja legstein á leiðið hans.

Á meðan við erum á Íslandi í ágúst ætlum við að reyna að slappa af eins og við getum. Við komum til með að hitta flesta þegar haldið verður upp á fjögurra ára afmæli Hlyns Snæs, þannig að við ætlum ekki að vera á endalausum þeytingi á milli staða til að hitta alla. Það verður nóg af því um páskana.

Annars er allt gott héðan bara. Gulla byrjuð á sænskunámskeiði og gengur líka svona svakalega vel. Undirbýr sig vel fyrir hvern tíma og er örugglega algjör kennarasleikja :o

Jæja … fínt í bili … Árni Gunnar.