Þá eru Gulla og Hlynur farin til Eyja - arnigunnar.net

Þá eru Gulla og Hlynur farin til Eyja

Í: Fjölskyldan|Vinnan

31 Mar 2006

Jæja … í dag fara Gulla og Hlynur til Vestmannaeyja. Það hefur verið mikill þeytingur á þeim undanfarna daga, en búið að vera mjög skemmtilegt. Hlynur Snær er alveg ringlaður á öllu þessu fólki. Ég held bara að Gulla hafi tekist að heimsækja alla einu sinni … það er varla að það sé neinn eftir fyrir mig :s

Hjá mér hefur verið nóg að gera í vinnunni, sem gerir veruna hérna alveg bærilega. Mér hefur aldrei liðið illa að vera einn, en ég verð nú að viðurkenna að húsið er dáldið tómt eftir að þau fóru til Íslands fyrir tæplega viku síðan.

Matarvenjurnar hafa breyst aðeins þessa vikuna. Ég hef ekki verið duglegur að elda fyrir mig einann þegar ég kem heim á kvöldin. Að venju borða ég vel í hádeginu (sem hefur gert það að verkum að ég er ögn stærri en ég var fyrir ári síðan), en nú borða ég yfirleitt bara brauð eða samloku á kvöldin, nenni ekki að elda. En ég ætla nú að reyna að elda eitthvað um helgina … það gengur ekki að borða brauð allann sólarhringinn … þá yrði maður nú fljótt stjarnan í þættinum Þú ert það sem þú borðar. Ef ég yrði það sem ég borðaði, þá væri ég alvöru (létt)smjör poppað popp með Pepsi Max :)

Verð líklega að vinna mest alla helgina, en ætla að skella mér á bílasýningu á sunnudag eða laugardag. Svo er ég að reyna að fá einhvern með mér á Inside Man eftir Spike Lee. Langar virkilega að sjá þá mynd.

Svo er 24 líka að stytta mér stundirnar … er alveg dottinn inn í 5. seríuna. Og horfi alveg 100% löglega. Aha … ræt.

Ójá … og ástæðan fyrir þessu brölti þeirra til Vestmannaeyja er að sjálsögðu ferming prinsessunnar, hennar Sigurlaugar Birnu. Hvernig get ég gleymt því :o



2 komment við Þá eru Gulla og Hlynur farin til Eyja

Avatar

Hanna, Gummi og börn

April 1st, 2006 at 17:48

Hæ Árni.
Þið eruð ávallt velkominn til okkar;-)

Avatar

Árni Gunnar

April 2nd, 2006 at 12:05

Hey … takk fyrir það … aldrei að vita nema við kíkjum. En við hittumst nú samt örugglega heima hjá Lólý, ég veit ekki hvað dagskráin okkar leyfir meira :s

  • Árni Gunnar: Andri minn ... ég er nú ekkert hræddur við áttræðar kjellingar ! [...]
  • Téður Andri Freyr Hansson: mikið ofboðslega hlakkar mig til að komast í fótbolta með þér..... mikið rosalega ætla ég [...]
  • ERla: Til lukku frændi ;)!!! [...]
  • Greta: Nú þá er bara að fljúga til Köben og skipta um vél þar. Getur varla kostað nálægt þessum [...]
  • Árni Gunnar: Þakka hlýleg orð ... við vorum í píanótíma í gær þar sem Elín hrósaði honum mikið fyr [...]

Síðan mín á Facebook

Myndir frá Flickr

  • Cheetah
  • Cheetah
  • Cheetah
  • A baby giraffe
  • Big giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Zebra
  • Buffalo
  • A baby zebra
  • Zebra

ODIN á Facebook

ODIN on Facebook

Flokkarnir

Safnið