— arnigunnar.net

Smá update

Fyrst má telja að ég setti inn nokkrar myndir á Flickr síðuna mína. Ég ætla að breyta aðeins albúmakerfinu mínu hérna og nota myndirnar þaðan. Það er hins vegar ekki komið í gagnið, þannig að linkur yfir á nýju myndirnar verður að duga í bili. Ég stefni á að setja inn nýjar myndir þarna í hverjum mánuði (yeah right …)

Sumarfríið er farið að taka á sig mynd. Í júní fer ég að sjálfsögðu til Þýskalands með strákunum. Ég hlakka mikið til að hitta þá eftir langa fjarveru frá Íslandi. Við verðum í Hamborg í 3 daga saman og sjáum einn leik á HM. Í lok júlí ætlum við svo að fara viku til Spánar. Lea fékk hús leigt þar og við verðum hjá þeim í viku. Fljúgum til Madrid og verðum þar í eina nótt og keyrum svo niður til Alicante. Fljúgum frá Spáni til Íslands þar sem haldið verður á Vestfirðina og Ólöf og Mummi heiðruð með nærveru okkar í brúðkaupi þeirra. Þar höfum við fengið leigt hús með Tobba, Lilju og Badda. Það verður alveg örugglega fín Verslunarmannahelgi. Svo tekur við smá kafli í Reykjavík þar sem verður haldið upp á afmæli drengjanna minna tveggja. Sá eldri, Dagur Freyr, fær veglega afmælisgjöf að þessu sinni, við ætlum að setja legstein á leiðið hans.

Á meðan við erum á Íslandi í ágúst ætlum við að reyna að slappa af eins og við getum. Við komum til með að hitta flesta þegar haldið verður upp á fjögurra ára afmæli Hlyns Snæs, þannig að við ætlum ekki að vera á endalausum þeytingi á milli staða til að hitta alla. Það verður nóg af því um páskana.

Annars er allt gott héðan bara. Gulla byrjuð á sænskunámskeiði og gengur líka svona svakalega vel. Undirbýr sig vel fyrir hvern tíma og er örugglega algjör kennarasleikja :o

Jæja … fínt í bili … Árni Gunnar.