— arnigunnar.net

Archive
March, 2006 Monthly archive

Jæja … í dag fara Gulla og Hlynur til Vestmannaeyja. Það hefur verið mikill þeytingur á þeim undanfarna daga, en búið að vera mjög skemmtilegt. Hlynur Snær er alveg ringlaður á öllu þessu fólki. Ég held bara að Gulla hafi tekist að heimsækja alla einu sinni … það er varla að það sé neinn eftir fyrir mig :s

Hjá mér hefur verið nóg að gera í vinnunni, sem gerir veruna hérna alveg bærilega. Mér hefur aldrei liðið illa að vera einn, en ég verð nú að viðurkenna að húsið er dáldið tómt eftir að þau fóru til Íslands fyrir tæplega viku síðan.

Matarvenjurnar hafa breyst aðeins þessa vikuna. Ég hef ekki verið duglegur að elda fyrir mig einann þegar ég kem heim á kvöldin. Að venju borða ég vel í hádeginu (sem hefur gert það að verkum að ég er ögn stærri en ég var fyrir ári síðan), en nú borða ég yfirleitt bara brauð eða samloku á kvöldin, nenni ekki að elda. En ég ætla nú að reyna að elda eitthvað um helgina … það gengur ekki að borða brauð allann sólarhringinn … þá yrði maður nú fljótt stjarnan í þættinum Þú ert það sem þú borðar. Ef ég yrði það sem ég borðaði, þá væri ég alvöru (létt)smjör poppað popp með Pepsi Max :)

Verð líklega að vinna mest alla helgina, en ætla að skella mér á bílasýningu á sunnudag eða laugardag. Svo er ég að reyna að fá einhvern með mér á Inside Man eftir Spike Lee. Langar virkilega að sjá þá mynd.

Svo er 24 líka að stytta mér stundirnar … er alveg dottinn inn í 5. seríuna. Og horfi alveg 100% löglega. Aha … ræt.

Ójá … og ástæðan fyrir þessu brölti þeirra til Vestmannaeyja er að sjálsögðu ferming prinsessunnar, hennar Sigurlaugar Birnu. Hvernig get ég gleymt því :o

Yup. The secret is officially out! Það er engum blöðum um það að fletta að leyndarmálið sem geymt var lengi, lengi, lengi er sloppið út í dagsljósið og hefur glatt manninn margann síðastliðna 2 daga. Já, það er ekki frá því að maður sé smá klökkur þegar ég segi frá þessu mikla leyndarmáli. Maður minn hvað var erfitt að halda þessu inni … ég hef bara sjaldan lent í öðru eins.

Nei nei … þetta var ekki svo erfitt. Allavega. Þeir sem eru ekki búnir að rekast á þau, þá fóru Gulla og Hlynur heim til Íslands á laugardaginn, 5 dögum fyrr en áætlað var. Gullu langaði að fá aðeins meiri tíma þar og fá að slappa aðeins af, ekki vera í endalausum heimsóknum.

Og ástæðan fyrir stóra, stóra leyndarmálinu var að Gulla fór í óvænta heimsókn til Andra og Lólýar. Hún og Andri gerðu aumingja Lólý mikinn grikk að láta hana ekki vita og Gulla mætti algjörlega surprise heim til þeirra. Mér er sagt að Alexander sonur þeirra sé ennþá að jafna sig eftir öskur móður sinnar. Hann hefur væntanlega haldið að eitthvað hræðilegt væri að gerast :o

Hlynur Snær var víst algjör herramaður á leiðinni og stóð sig eins og hetja að venju þegar mikið liggur við. Hann er alveg í essinu sínu heima þegar hann fær að hitta allt þetta fólk og fá alla þessa athygli … veit ekki alveg hvaðan hann fær það :s

En leiðinlega afleiðingin af þessu er sú að ég verð einn í kotinu í Svíþjóð alveg fram til 11. apríl, en þá fæ ég líka að fara til Íslands. Ég ætla að eyða páskunum þar.

Jæja … best að halda áfram að vinna … það er víst það eina sem hægt er að gera af viti :)

Újé !! Þetta var magnað maður :) Ég fékk að sjá fyrsta deildarleikinn með Liverpool þetta tímabililð núna áðan. Canal + sem sýnir leikina var í samstarfi við aðra stöð hérna og sýnir bolta í allann dag. Liverpool Everton var fyrstur á dagskrá og þvílíkur leikur.

Steven Gerrard var greinilega eitthvað pirraður og fékk 2 gul spjöld með stuttu millibili í fyrr hálfleik og var sendur í sturtu. Alveg hárrétt hjá dómaranum og svona mega fyrirliðar ekki haga sér, það er alveg á hreinu.

Everton skoraði sjálfsmark í lok fyrri hálfleiks og Luis Garcia setti annað fljótlega í seinni hálfleiknum. Tim Cahill minnkaði muninn, en Harry Kewell skoraði með góðu langskoti og kláraði leikinn fyrir okkur :)

Oh … hvað þetta var gaman :)

Það er smá surprise í gangi. Fyrir þá sem vita … ekki segja. Fyrir þá sem ekki vita … þá er bara að bíða :)

Ég hef verið að dunda mér yfir helgina að flytja yfir gamlar dagbókarfærslur. Áður en ég setti síðasta vef í loftið var ég að nota mitt eigið kerfi fyrir dagbækurnar og rakst fyrir slysni á þær allar hérna á tölvunni minni. Ákvað að skella þeim inn. Þetta eru færslur frá október 2001 og til ágúst 2004, en þá setti ég í loftið vef sem var vistaður niðri í Innn.

Stuttu eftir að ég hætti þar í febrúar í fyrra hvarf allt í einu gagnagrunnurinn af þeirri síðu og allar færslur frá ágúst 2004 til júní 2005 eru horfnar að eilífu. Hef aldrei komist til botns í því hvað gerðist hjá þeim … það hefur allavega enginn viljað viðurkenna að hafa eytt gögnunum mínum. Og svo var ég víst ekki nógu mikilvægur til að taka backup af mínum gögnum. Þetta hefur allavega kennt mér að treysta ekki öðrum en professional hosting fyrirtækjum fyrir svona hlutum.

Við vorum í afmæli í dag, Tinna hans Svavars er eins árs í dag! Til haminju Tinna :) Að voru lítið annað en slagsmál á milli frændanna Emils og Hlyns Snæs. Leiðinlegt hvað þeim virðist semja illa oft á tíðum.

Í gærkvöldi vorum við með lítið matarboð. Robin (frá Hollandi) og Natalya kærastan hans (frá Úkraínu) komu í mat. Við gáfum þeim Íslenskan fisk með Mexíkósku ívafi (Örn og Björg vita hvað ég meina). Það var mjög gaman alveg.

… en svo þarf hann að fara aftur með bílinn og láta laga eitthvað. Bömmer.

Svavar og Katarina voru að kaupa sér nýjann bíl. Þau festu kaup á VW Passat station árgerð 1999 að mig minnir. Blár og flottur. Umboðið sem þau keyptu af er búið að vera að fixa til bílinn í næstum 2 vikur og átti hann að vera tilbúinn á laugardaginn.

Þegar þau komu að ná í bílinn, búin að borga, búin að setja Emil í bílinn og lögð af stað heim, þá heyrir Svavar eitthvað hljóð í vélinni. Þá er einhver hosa farin af. Og þau þurftu að flytja allt yfir í gamla bílinn aftur og setja Passatinn á verkstæðið. Mega bömmer.

Svo í gær komu þeir með bílinn til hans og Emil kættist nú ekkert smá við það … búinn að bíða eftir bláa bílnum alveg heillengi. Við fengum meira að segja að sjá gripinn þegar feðgarnir fóru í smá bíltúr.

En svo í morgun þá talaði Gulla við Svavar og þá er komið eitthvað hljóð í afturdekkið … og umboðið er að koma og ná í bílinn og kíkja á það. Magnað hvað þetta er skemmtilegt.

Við erum svo að spá í að senda okkar bíl bara heim og kaupa annann hérna úti. Svíar eru snillingar í að búa til pappírsvesen með svona hluti og ég er búinn að komast að því að það er major mál að skrá bílinn hérna. Og þá er bara eitt að gera. Senda hauginn heim og kaupa annann haug hérna úti. Við fáum líka töluvert meira fyrir bílinn heima heldur en hér, bílar eru dýrari heima.

Nennir einhver að fara með hann í Norrænu :)

Þó svo að það komi önnur færsla núna, þá ætla ég ekki að gera það að vana að skrifa á hverjum degi … bara hafa það á hreinu.