* You are viewing the archive for February, 2006



Dj******* leti er þetta í manni. Geeez :(

Lífið gengur bara sinn vangang hérna í Svíþjóð. Hlynur er svona líka glimrandi glaður með Terese, dagmömmuna sína. Hann er svoleiðis farinn að sletta sænskunni heima hjá sér að það hálfa væri nóg. Hann segir kom og inte í gríð og erg. Svo þegar hann er hjá henni, þá talar hann alveg massa sænsku er okkur sagt. Hann skilur mest allt sem sagt er við hann og er alveg svakalega duglegur. Enda ofurgáfaður drengur þarna á ferðinni.

Gulla ætlaði sér að byrja á sænskunámskeiði í morgun, en það gekk nú ekki þrautarlaust fyrir sig. Það byrjaði nú þannig að hún var ekki á lista yfir þátttakendur í námskeiðinu og upp úr því varð eitthvað smá vesen. Henni var plantað í einhvern … Lesa alla færsluna

Við förum til Þýskalands !

Við (ég, Andri, Arnar og Gummi) sóttum um miða á 3 leiki. Brasilía - Króatía, Argentína - Fílabeinsströndin og Ekvador - Kosta Ríka. Það voru um það bil 6 milljón umsóknir sem komu inn, en aðeins 300.000 miðar í boði. Og viti menn, við fengum miða. Reyndar á sísta leikinn, Ekvador - Kosta Ríka, en okkur er nokk sama. Það verður meiriháttar að eyða nokkrum dögum með sínum bestu vinum og horfa svo á eins og eitt stykki knattspyrnuleik í Heimsmeistarakeppninni. Það verða 5 leikir alls í Hamburg, allir á leikvelli Hamburger SV, sem tekur um 55.000 manns.

Við eigum enn eftir að koma okkur saman um ferðatilhögun, en tilhlökkunin er mikil og það verður æðislegt að fá að upplifa HM … Lesa alla færsluna