* You are viewing the archive for January, 2006



Veikindi, Lólý, Robbie Fowler og fleira

Ég var veikur í næstum heila viku. Það hefur ekki gerst svoooo lengi. Á föstudaginn fyrir rúmlega viku var Pétur yfirmaður minn og nágranni á skrifstofunni með þetta líka massa kvef. Í gríni sagði ég við hann að ég myndi örugglega ekki mæta á mánudeginum, ég yrði veikur. Og viti menn … sú spá rættist og gott betur. Þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag var ég alveg í tjóni. Ég reyndi að vinna soldið heima bæði fimmtudag og föstudag, en það varð nú ekkert rosalega mikið úr því, þannig séð.

Ég bara man ekki eftir neinu atviki þar sem ég hef verið veikur svona lengi. Yfirleitt hef ég verið hraustur og veikst lítið. Og í þau fáu skipti sem ég fæ einhverja … Lesa alla færsluna

Fyrsti í dagmömmu í gær

Hlynur Snær fór í fyrsta sinn til Therese, dagmömmunnar sem ætlar að sjá um drenginn í heila 6 tíma á dag. Gulla og Hlynur Snær voru hjá henni í rúmann klukkutíma. Gulla hélt sig þó að mestu til hlés.

Að okkar mati gekk þetta mjög vel. Það komu upp smávægilegir tungumálaörðuleikar, en það var nú við því að búast (er það ekki Erla??). Hann vildi fá að hlusta á tónlist, en hún var ekki alveg að skilja hvað hann var að biðja um og það fór ekki vel í skapstóra kappann minn. Hann bara stóð og öskraði á greyið konuna. En hún tekur þessu mjög vel og ég held að þetta komi til með að vera í fínu lagi.

Hlynur Snær var … Lesa alla færsluna

Hvað er með DV? Er fólkið þar gjörsamlega steikt í hausnum ??

Án þess að ég viti hvernig lögreglurannsókn þessa máls stendur, þá skilst mér að kennari á Ísafirði hafi lent undir grun að hafa gert eitthvað ósæmilegt við 2 drengi þar í bæ. Ekki taka þessum pistli þannig að ég sé að verja manninn. Ef hann er sekur um það sem um var talað, mætti hengja hann upp á eistunum úti á torgi mín vegna.

DV tekur sig svo til í gær og birtir af þessum manni mynd, nafngreinir hann og stuttu síðar fremur hann sjálfsmorð. Ef ég ætti þetta blað, myndi ég sjá sóma minn í því að breyta þar verulega um stefnu og senda flesta blaðamennina og ritstjórann beint á atvinnuleysisskrifstofuna. Þetta nær náttúrulega ekki nokkurri átt … Lesa alla færsluna

We are coming home

Já, það er rétt, við erum að koma í heimsókn til Íslands í kringum páskana. Sigurlaug Birna er að fara að fermast þann 2. apríl og Gulla og Hlynur eru svo heppin að fá að vera viðstödd þann atburð. Þau fljúga til Íslands þann 30. mars og ég kem svo 11. apríl og við förum svo heim þriðjudaginn eftir páska, 18. apríl. Hlakka til að sjá ykkur öll :)

Annars erum við búin að hafa það mjög gott yfir jól og áramót. Tengdó og Bjarni “bróðir” voru í heimsókn yfir jólin og það var mikið etið og skemmt sér eins og venjulega. Jólaísinn klikkaði ekki frekar en venjulega og allir sáttir við sitt held ég bara. Við gáfum Hlyni Snæ snjósleða … Lesa alla færsluna