Jólamyndirnar komnar
Var að setja inn nokkrar jólamyndir. Smellið á myndir, fjölskyldumyndir og jólamyndir. Enjoy!
* You are viewing the archive for December, 2005
Var að setja inn nokkrar jólamyndir. Smellið á myndir, fjölskyldumyndir og jólamyndir. Enjoy!
Þar sem við erum bara búin að fá 15 jólakort, en sendum 56, þá birti ég hér með heimilisfangið okkar til vonar og vara …
Annað hvort erum við gleymd og grafin eða bara orðin hundleiðinleg hérna í Svíþjóð. Allavega. Þá er þetta heimilisfangið okkar:
Árni Gunnar Ragnarsson
Oxelbärsgränd 60
165 72 Hässelby
Sweden
Takk fyrir að senda okkur kort :)
Jólin að koma, gestir að koma og XBOX að koma!
Já, ég á glænýja XBOX 360 leikjatölvu á Íslandi og Bjarni “bróðir” ætlar að koma með það hingað út þegar hann kemur á sunnudaginn (vonandi fyrir hann, því annars þarf hann að gista einhvers staðar annars staðar).
Og þá byrjar vesenið … hvaða leiki á maður að versla sér til að byrja með. Ég var alveg harðákveðinn í að fá mér nýja FIFA leikinn, en hann er víst algjör krapp og ég er búinn að strika hann út af listanum mínum. Ég ætla að kaupa mér (og fá í jólagjöf) Project Gotham Racing og einn annan leik. Og þá harðnar á dalnum. Á ég að kaupa mér golfleik (Tiger Woods) eða skotleik … Lesa alla færsluna