Hitakútur, eltingaleikur og fleira
Það komu hingað 2 sænskir indælismenn snemma í morgun og settu upp hjá okkur nýjann hitakút. Þeir voru hjá okkur allann daginn, tóku gamla bilaða kútinn og settu upp glænýjann og gljáfægðann hitakút. Hann er tvískiptur, annars vegar sér hann um að hita húsið, hins vegar um að sjá okkur fyrir heitu vatni í krana og sturtur. Þetta er víst það besta sem hægt er að fá í dag, og við viljum aðeins það besta.
Og það besta er svo sannarlega ekki ókeypis frekar en fyrri daginn. 37.000 sænksar gyllikrónur takk fyrir. Í íslenskum krónum reiknast það sem u.þ.b. 280.000, sem við getum nú ekki alveg hrist fram úr erminni svo glatt. Við ákváðum því að hækka lánið á húsinu til … Lesa alla færsluna