* You are viewing the archive for October, 2005



Var að bæta við nokkrum myndum

Ég var að bæta við nokkrum myndum í myndaalbúmið. Smellið á myndir, veljið flokkinn Hlynur Snær og þar eru nýjar myndir af honum sem teknar voru í haust við hin ýmsu tilefni.

Vondar konur, 31, haust, afmælisgjafavandræði

Jæja … þá er maður orðinn þrjátíuOG eitthvað. 15. október síðastliðinn náði ég þeim stóra áfanga að verða þrjátíuOGeins árs gamall. Að venju var héldum við smá veislu, en hún var reyndar fámennari en venjulega. Pabbi var í heimsókn frá Íslandi. Svavar, Katarina, Emil og Tinna mættu á svæðið. Robin og Natalya mættu líka (reyndar aðeins sein á ferð, en það var allt í lagi). Súkkulaðikaka, “Ingukaka” og fleira gott gúmmelaði var í boði, og enn fullt af afgöngum eftir ef þú ert í nágrenni Stokkhólms og langar að mæta í heimsókn.

Ég fékk eitthvað af aurum í afmælisgjöf, frá mömmu, Gullu og tengdó og ég bara hef ekki minnstu hugmynd um hvað ég á að nota þá í. Ég er … Lesa alla færsluna

Full, fullt, fullt af stöffi

Ja hérna … mikið rosalega er langt síðan síðast … og fullt búið að gerast :)

Við skelltum okkur til London í heimsókn til Erlu frænku, Kalla, Þórdísar, Halldóru og Trausta. Stubburinn stóð sig eins og hetja á þessum ferðalögum. Við flugum með Ryanair frá Vesterås, sem er 90 km akstur frá okkur. Áttum flug kl. 10 og lögðum því af stað um hálf átta leytið og eyddum 2 tímum uppi á flugvelli í rólegheitunum.

Vesterås er mjög lítill flugvöllur, engir rampar til að fara út í vél, bara gömlu góðu tröppurnar. Hlyni fannst alveg svakalega gaman að fá að sjá flugvélina á leiðinni út í vél. Og hann stóð sig líka eins og hetja á leiðinni. Við borðuðum smá nesti þegar … Lesa alla færsluna