Nú er loksins hægt að skoða myndir!
Það er gjörsamlega alveg klikk að gera í vinnunni þessa dagana. Það er verið að vinna að nýjum lastminute.se vef sem verður að vera tilbúinn fyrir 1. október. Einnig var ákveðið að hanna nýjann vef frá grunni og byggja hann á nýrri tækni sem enginn hérna innanhúss hefur unnið með áður. Ástæðan fyrir þessu öllu saman er að lastminute.com var keypt í sumar af Bandarísku fyrirtæki sem heitir Sabre. Sabre á fyrirtæki hér í Svíþjóð sem við munum vinna mikið með í framtíðinni. Við munum smíða nýja vefinn á þeirra tækni og það er ekki auðvelt skal ég segja ykkur. Stuð.
Ég skutlaði síðasta sumargestinum heim áðan … Linda, vinkona hennar Gullu, ákvað að eyða með okkur þrítugsafmælinu sínu. Það verður … Lesa alla færsluna