— arnigunnar.net

Smá update

Það hefur verið mikið að gera hjá okkur fjölskyldunni undanfarið. Mikið af gestum að koma og fara, gott veður að mestu leiti og miiiikið grillað á stóra grillinu.

Tengdamamma fór og pabbi, Lea og Sigurlaug komu og voru hjá okkur í 6 daga við mikla lukku hjá Hlyni Snæ (og okkur hinum tveimur líka). Þau komu vel birg af íslenskum fisk, íslensku nammi og íslenskum fótboltaleik á videospólu, Valur-KR, sem fór 3-0 fyrir Val! Við tókum því bara rólega á meðan þau voru hérna, sýndum þeim það helsta sem við erum búin að fatta :o Við fórum meðal annars á Skansinn, í Gröna Lund (Tívolíið hérna) og út að borða, allt sama daginn. Drengurinn minn stóð sig bara eins og hetja og varð ekkert pirraður á þessu öllu saman.

Svo komu Ólöf og Mummi. Þar sem heimsóknir þeirra sköruðust aðeins, þá gistu þau hjá Badda fyrstu dagana og komu svo til okkar þegar pabbi og co voru farin heim. Það var spilað, borðaður góður matur, farið á Hard Rock Cafe, spilað og spilað. En þau gleymdu að skrifa í gestabókina sem okkur fannst mjög slæmt. Þau hafa hins vegar lofað að senda okkur gestabóksfærslu í pósti og við færum hana inn fyrir þau.

Núna er víst mjög tómt heima … Gulla og Hlynur ein í kotinu í fyrsta sinn síðan 19. maí. Það eru svolítil viðbrigði fyrir hann að þurfa að vera með okkur tveimur allt í einu … hann er búinn að vera mikið pirraður eftir að Ólöf og Mummi fóru. Hitinn hefur líklega eitthvað að gera með það líka. Í gær var svo heitt að ég meikaði varla að fara út úr húsi. Við drösluðumst samt í smá göngutúr með stubbinn sem að venju vildi labba allt sjálfur. Það sem hann hefur mjög svo sjálfstæðann vilja, var erfitt að koma honum í kerruna þegar við komum niður að sjó, en það hafðist að lokum.

Svo kemur mamma eftir tæplega 3 vikur og þá ætla ég í smá frí. Hún ætlar líka að vera svo góð við okkur að passa á meðan við skreppum til Kaupmannahafnar að horfa á U2 á Parken með Andra og Lólý. Sverrir og Greta verða þarna á svæðinu líka, veit ekki hvort okkur tekst að hitta þau.

Svo vorum við að ákveða að skreppa til London í september. Ætlum að heimsækja Erlu frænku og alla hennar fjölskyldu sem býr þar. Fundum alveg hræódýrt flug með Ryanair og bara gátum ekki sleppt þessu tækifæri … það er nú ekki alltaf sem maður getur heimsótt uppáhaldsfrænku sína til London :)

Jæja … gott í bili … Árni Gunnar