Sökkí veður núna. Hvar er sólin ??
Í fyrrinótt vöknuðum við við þvílík læti, líkt og í sprengingu. Við höldum að þetta hafi verið þrumuveðrið að gera vart við sig eitthvað nálægt okkur. Eftir að hafa vaknað svona illa var mjög erfitt að sofna fyrir látum í þrumum og birtu frá eldingunum. Sem betur fer þá stein svaf Hlynur Snær allann tímann. Þetta er víst eitthvað sem maður verður að venja sig við þegar maður býr hérna. Það hafa komið nokkur skemmtileg þrumuveður síðan við fluttum, en ekkert eins og þetta.
Annars var ég að gera smá uppfærslu á vefnum. Nú er komið eitthvað efni undir flestar síður, þó það sé nú ekki mikið. Gestabókin er enn óvirk, en myndaalbúmskerfið er 95% tilbúið og ég vonast til að … Lesa alla færsluna