Komin önnur færsla, og smá uppfærsla - arnigunnar.net

Komin önnur færsla, og smá uppfærsla

Í: Fjölskyldan|Svíþjóð|Vefurinn

17 Jun 2005

Annars er allt gott af okkur að frétta. Gulla, Hlynur Snær og tengdamamma eru gjörsamlega að stikna úr hita hérna heima á daginn. Það fer upp í ca 25 gráður og það er bara helvíti heitt skal ég segja ykkur.

Hlynur sefur bara í nærbuxum og með bleijuna sína, honum er svo heitt. Hann er samt alveg að fíla sig í þessu … fær bara nógann ís að borða og er þá voða kátur. Ég held að maðurinn í ísbílnum sé farinn að þekkja Gullu, hún er alltaf að kaupa ís. Ég held að Hlynur sé með óvenju þroskað málbein … hann bara hættir ekki að tala. Hann talar og talar allann daginn. Það er eins og hann sé að vinna upp það sem hann tapaði fyrstu 2 árin sín. Það er samt mjög gaman að honum þó að maður geti líka fengið alveg nóg.

Ég er á sænskunámskeiði tvisvar í viku og það gengur bara ágætlega. Ég fór í próf í gær (fyrsta prófið mitt í 11 ár) og gekk bara ágætlega held ég … ég skal segja ykkur hvað ég fékk þegar ég fæ niðurstöðuna eftir helgi. Svo get ég nú ekki sleppt því að tala um hversu vel Val gengur heima á Íslandi. 6 leikir og 5 sigrar … eina tapið var gegn langbesta liðinu í deildinni. Greinilegt að Willum og Gummi Ben gera gæðamuninn.

Jæja … þarf að koma mér í rúmið og ofaná sængina (því það er svo heitt) … það á að skíra hana Tinnu litlu á morgun. Gulla er búin að standa á haus í allann dag að baka (kemur á óvart). Ég fæ allavega Ingu Köku á morgun :):):):)



4 komment við Komin önnur færsla, og smá uppfærsla

Avatar

mamma

June 19th, 2005 at 14:40

H rni Gunnar minn. Til hamingju me suna. Byrjunin lofar gu. Hlakka til a sj meira kveja mama

Avatar

Sigurlaug

June 19th, 2005 at 21:12

H. Vi erum ll a deyja r spenningi, .e.a.s g, mamma og Raggi. Vi urfum a vakna kl 4!!! Bara taf flugvrlin fer kl 7:50. Vi keyptum eitthva nammi fyrir ykkur. Elskar Gulla ekki grnt strumpa pal??

Avatar

Erla frnka :)

June 20th, 2005 at 13:40

Frbrt a heyra aeins fr ykkur. Flott sa. Hr er lka ofboslega heitt og fjrfesti g viftum rtt an :) Kr kveja fr Woodstock

Avatar

Inga Dgg

June 22nd, 2005 at 13:45

Get bara ekki anna en veri gl a g skuli vera nefnd hr inni. Tek a fram a kakan heitir Ingu kaka hfui mr svo allir viti :) :D Annars er bara frbrt a vita a i hafi a gott. Kv. Inga Dgg

  • Árni Gunnar: Andri minn ... ég er nú ekkert hræddur við áttræðar kjellingar ! [...]
  • Téður Andri Freyr Hansson: mikið ofboðslega hlakkar mig til að komast í fótbolta með þér..... mikið rosalega ætla ég [...]
  • ERla: Til lukku frændi ;)!!! [...]
  • Greta: Nú þá er bara að fljúga til Köben og skipta um vél þar. Getur varla kostað nálægt þessum [...]
  • Árni Gunnar: Þakka hlýleg orð ... við vorum í píanótíma í gær þar sem Elín hrósaði honum mikið fyr [...]

Síðan mín á Facebook

Myndir frá Flickr

  • Cheetah
  • Cheetah
  • Cheetah
  • A baby giraffe
  • Big giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Baby giraffe
  • Zebra
  • Buffalo
  • A baby zebra
  • Zebra

ODIN á Facebook

ODIN on Facebook

Flokkarnir

Safnið