Hrikalega er maður orðinn latur
við að uppfæra þessa blessuðu dagbók. Samt er margt búið að gerast síðan síðast. Ég er búinn að vera að vinna eins og svín. Að meðaltali um 13-16 tíma á dag, flesta daga vikunnar (minna um helgar). Það er verið að vinna mjög stórt verk hjá Innn sem er persónulega mjög spennandi fyrir mig ;)
Við tókum okkur reyndar smá pásu um þar síðustu helgi og skelltum okkur til London á árshátíð. Það var geðveikt gaman, dáldið verslað og mikið labbað. Á leiðinni heim kom ég aðeins við í Fríhöfninni og keypti mér myndavélina sem ég hef verið að láta mig dreyma um í marga, marga mánuði. Canon 300 D heitir vélin og er stafræn myndavél sem hægt er að skipta … Lesa alla færsluna