Það er algjör geðveiki niðri í vinnu … alveg klikkun að gera. Við erum að vinna stórt verkefni sem að kemur í ljós síðar hvað er ;) Það er því þannig þessa dagana að við Gulla sjáumst eiginlega ekki neitt. Ég kem heim og hún fer að vinna um leið. Svo kemur hún heim og þá er ég að vinna og vinn langt fram á kvöld. Við áætlum að sjást einhvertímann í maí að minnsta kosti.
Svo var keyrt á Gullu um daginn. Toyotudrusla skutlaðist aftaná Gullu á ljósum hér í bæ. Toyotan skemmdist dálítið, húddið beyglaðist, ljósið brotnaði og stuðarinn var töluvert krambúleraður. Það sást ekki á Opelnum okkar! Stuðarinn að aftan var ekkert beyglaður og smá rispur áhonum. Alveg … Lesa alla færsluna