Hættur
Já … það er orðið opinbert, ég er hættur sem vefstjóri vefs Knattspyrnufélagsins Vals eftir nærri 8 ára starf. Þetta hefur verið mikil vinna og þar sem ég er að drukkna í annarri vinnu, fannst mér rétt að láta einhverjum öðrum þetta eftir. Það er nú samt ekkert auðvelt að láta barnið sitt í hendurnar á einhverjum öðrum, en það kemur víst að þessu hjá öllum “foreldrum” ;)