* You are viewing the archive for March, 2004



All fixed and ready to rock

Jæja … Gummsterinn lagaði tölvuna mína af sinni alkunnu snilld. Hann þurfti að recovera fullt af skrám sem höfðu skemmst við flutningana. En hann reddaði þessu garmurinn. Minns er verulega þakklátur fyrir það. Er á fullu að setja upp vélina. Þetta verður alveg pura vinnu tæki. Engir leikir, ekkert fancy stuff … það verður bara á lappanum. Nú verður sko rokkað!

Ég ætla að taka eina tölvuna úr umferð, ætla að gefa mömmu hana. Þá verð ég bara með 3 tölvur hérna … reyndar einn blómapott (iMac) í láni frá tengdó.

Svo er tölvuleikjakeppni framundan. Ég, Andri, Gummi og Arnar ætlum að hittast á morgun og spila einverja leiki. Gulla er að fara á árshátíð með HR og ég var einhvern veginn … Lesa alla færsluna

Magnað

Bara kominn 3. mars strax … 2 mánuðir liðnir af árinu. Maður verður búinn að ferma áður en maður veit af.

Er í endalausu veseni með tölvurnar mínar … keypti mér 160 GB disk fyrir næstum 2 vikum síðan og hef ekki enn komið honum í gang. Setti stóru tölvuna upp á nýtt, en tölvan sér ekki nýja diskinn, af einhverjum skringilegum ástæðum. Mikið rosalega er ég EKKI góður í svona dóti. Ég er sko ekki nógu þolinmóður til að standa í svona veseni. Þetta á bara að ganga upp í fyrsta. Punktur og Pasta.

Veðrið er að gera okkur feðgunum grikk þessa vikuna. Gulla mætir kl. 07:00 á morgnana í vinnuna og þarf því að fara á bílnum. Það þýðir að … Lesa alla færsluna